Sumarfrístund fyrir börn fædd ´01-´04
SUMARFRÍSTUND
Frístundaheimili Frostaskjóls bjóða upp á þjónustu frá skólaslitum til skólasetningar, utan 18. júlí-05. ágúst, þegar lokað verður vegna sumarleyfa starfsmanna. Frístundaheimilið Undraland við Grandaskóla mun sameinast Skýjaborgum við Vesturbæjarskóla og Selinu við Melaskóla í sumar (sjá nánar um opnunartíma þar undir vikur í boði). Frístundaheimilið Selið er með lengstu opnunina í sumar og býðst börnum úr Undralandi, Skýjaborgum og Frostheimum að sækja Selið þegar lokað er á öðrum frístundaheimilum. Frístundaheimilið Frostheimar verður með opið fyrstu fjórar vikur sumarsins og síðustu tvær vikurnar fyrir skólasetningu fyrir börn í 3. og 4. bekk og mun dagskráin þar vera sérsniðin fyrir þeirra aldurshóp og með fjölbreyttara og meira krefjandi sniði.
Opnunartími frístundaheimilanna er frá kl. 8.00–17.00. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 9.00–16.00 og er fast vikugjald fyrir þann tíma. Þó er hægt er að velja um mislangan vistunartíma og greiðist aukalega fyrir þann tíma sem nýttur er utan kl. 9.00-16.00 (sjá nánar í verðskrá):
Kl. 8.00–16.00 Kl. 9.00–16.00 Kl. 9.00–17.00 Kl. 8.00–17.00
Lögð er áhersla á öryggi og kunnuglegt umhverfi í bland við lærdóm og leik og að börnin séu með sama barna- og starfsmannahópnum og þau þekkja frá vetrinum. Unnið verður með vikuþema á öllum stöðunum, dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og allir eiga að geta fundið viðfangsefni við hæfi.
Frístundaheimili sem bjóða upp á Sumarfrístund:
Frá 02. maí verður hægt að smella á viðkomandi viku til að fara beint í skráningu í Rafrænni Reykjavík.
Selið v./ Melaskóla, 695 5061, 664 7658, www.frostaskjol.is/selid
07. júní - 10. júní – Dýravika
14. júní - 16. júní – Íslandsvika
20. júní - 24. júní - Lista- og menningarvika
27. júní - 01. júlí – Íþróttavika
04. júlí - 08. júlí - Reykjavíkurvika
11. júlí - 15. júlí - Útivistarvika
18. júlí - 22. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
25. júlí - 29. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
01. ágúst - 05. ágúst - Lokað vegna sumarleyfa
08. ágúst - 12 ágúst –Ævintýravika
15. ágúst - 19. ágúst – Vatnavika
Skýjaborgir v./ Vesturbæjarskóla, 695 5053, www.frostaskjol.is/skyjaborgir
08. júní - 10. júní – Útivistarvika
14. júní - 16. júní – Dýravika
20. júní - 24. júní – Vatnavika
27. júní - 01. júlí – Lista- og menningarvika
04. júlí - 08. júlí – Sameinast Selinu
11. júlí - 15. júlí - Sameinast Selinu
18. júlí - 22. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
25. júlí - 29. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
01. ágúst - 05. ágúst - Lokað vegna sumarleyfa
08. ágúst - 12. ágúst – Ævintýravika
15. ágúst - 19. ágúst - Íþróttavika
Frostheimar v./ Frostaskjól, 695 5083, 695 6626 www.frostaskjol.is/frostheimar
07. júní - 10. júní – Krakkahreysti
14. júní - 16. júní – Listir og menning
20. júní - 24. júní – Borgin okkar
27. júní - 01. júlí – Vatnsleikir og fjör
04. júlí - 08. júlí – Sameinast Selinu
11. júlí - 15. júlí - Sameinast Selinu
18. júlí - 22. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
25. júlí - 29. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
01. ágúst - 05. ágúst - Lokað vegna sumarleyfa
08. ágúst - 12. ágúst – Vísindi og tilraunir
15. ágúst - 19. ágúst - Hellar, fjöll og fjara
Samstarf við sunddeild KR.
Frístundaheimili Frostaskjóls hafa undanfarin sumur átt í samstarfi við sunddeild KR. Foreldrum/forráðamönnum barna í 1. og 2. bekk býðst að skrá börn sín á sundnámskeið hjá KR í gegnum Rafræna Reykjavík um leið og þeir skrá þau í frístundaheimili á vegum Frostaskjóls. Foreldrar/forráðamenn mæta daglega með börnin á sundnámskeið hjá KR, sem hefst kl. 8:20 í Vesturbæjarlaug. Frístundaleiðbeinendur sækja börnin í andyri Vesturbæjarlaugar að sundnámskeiði loknu og fylgja þeim tilbaka í frístundaheimilið sitt. Skilyrði fyrir því að skrá barnið í sundhóp kl. 8:20 er að barnið sé jafnframt skráð í frístundaheimilið Selið eða Skýjaborgir á sama tímabili. Athugið að skrá þarf barn bæði í frístundaheimili og á sundnámskeið með sumarfrístund í Rafrænni Reykjavík til að skráningin sé virk. Til að skrá börn á sundnámskeiðið þarf að velja tegundina ,,Sundnámskeið með sumarfrístund" og staðinn ,,Sumarstarf í Frostaskjóli".
Gjaldskrá fyrir sundnámskeið með sumarfrístund er 6.000. krónur.
1. tímabil: 07. júní -. 16 júní
2. tímabil: 20. júní - 01. júlí
3. tímabil: 04. júlí - 15. júlí
4. tímabil: 08. ágúst – 19. ágúst
Nánari upplýsingar
411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is
Skráning
Skráning frá 02. maí á Rafrænni Reykjavík
Verð á viku í sumarfrístund
6.670 kr. (5 dagar)
6.150 kr. (4 dagar)
5.290 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur
-----------------------------------------------------------------------------------------------
Verð á viku í gæslu morgun (8-9) eða síðdegi (16-17)
1.940 kr. (5 dagar)
1.680 kr. (4 dagar)
1.270 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur
Nánari upplýsingar
411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is