Sumarfrístund fyrir börn fædd ´02-´05
SUMARFRÍSTUND
Frístundaheimili Frostaskjóls bjóða upp á þjónustu frá skólaslitum til skólasetningar, utan 16. júlí-06. ágúst, þegar lokað verður vegna sumarleyfa starfsmanna. Frístundaheimilið Selið hefur opið lengst og býðst börnum úr Undralandi, Skýjaborgum og Frostheimum að sækja Selið þegar þá viku sem lokað er á þeim frístundaheimilum. Dagskráin í frístundaheimilinu Frostheimum er sérsniðin fyrir 3. og 4. bekkinn og er með fjölbreyttara og meira krefjandi sniði en dagskráin fyrir yngri aldurshópinn.
Opnunartími frístundaheimilanna er frá kl. 8.00–17.00. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 9.00–16.00 og er fast vikugjald fyrir þann tíma. Þó er hægt er að velja um mislangan vistunartíma og greiðist aukalega fyrir þann tíma sem nýttur er utan kl. 9.00-16.00 (sjá nánar í verðskrá):
Kl. 8.00–16.00 Kl. 9.00–16.00 Kl. 9.00–17.00 Kl. 8.00–17.00
Lögð er áhersla á öryggi og kunnuglegt umhverfi í bland við lærdóm og leik og að börnin séu með sama barna- og starfsmannahópnum og þau þekkja frá vetrinum. Unnið verður með vikuþema á öllum stöðunum, dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og allir eiga að geta fundið viðfangsefni við hæfi. Náist ekki lágmarksþátttaka í einhverri viku, gæti þurft að sameina frístundaheimilið með öðru frístundaheimili.
Frístundaheimili sem bjóða upp á Sumarfrístund:
Skráning hefst 23. apríl á Rafrænni Reykjavík.
Frostheimar v./ Frostaskjól, 695 5083, 695 6626 www.frostaskjol.is/frostheimar
11. – 15. júní : Krakkahreysti
18. – 22. júní : Vatnsleikir og fjör
25. – 29. júní : Hjólagarpar
2. - 6. júlí : Vísindabúðir
9. – 13. júlí : – Sameinast Selinu
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
7. – 10. ágúst : Sull og skvett stuð
13. – 17. ágúst : Hellar, fjöll og fjara
Selið v./ Melaskóla, 695 5061, 664 7658, www.frostaskjol.is/selid
11. – 15. júní : Sjávarvika
18. – 22. júní : Leikjavika
25. – 29. júní : Útivistavika
2. - 6. júlí : íþróttavika
9. – 13. júlí : Heimsborgaravika
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
7. – 10. ágúst : Ævintýravika
13. – 17. ágúst : Vatnavika
Skýjaborgir v./ Vesturbæjarskóla, 695 5053, www.frostaskjol.is/skyjaborgir
11. – 15. júní : Vatnavika
18. – 22. júní : Útivistarvika
25. – 29. júní : Dýravika
2. - 6. júlí : Ferðavika
9. – 13. júlí : – Sameinast Selinu
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
7. – 10. ágúst : Leikjavika
13. – 17. ágúst : Ævintýravika
Undraland v./ Grandaskóla, 695 5054 www.frostaskjol.is/undraland
11. – 15. júní : Ferðavika
18. – 22. júní : Dýravika
25. – 29. júní : Vatnavika
2. - 6. júlí : Ævintýravika
9. – 13. júlí : – Sameinast Selinu
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
16.-20. júlí: Lokað vegna sumarleyfa
7. – 10. ágúst : Útivistarvika
13. – 17. ágúst : Leikjavika
Samstarf við sunddeild KR.
Frístundaheimili Frostaskjóls hafa undanfarin sumur átt í samstarfi við sunddeild KR. Foreldrum/forráðamönnum barna í 1. og 2. bekk býðst að skrá börn sín á sundnámskeið hjá KR í gegnum Rafræna Reykjavík um leið og þeir skrá þau í frístundaheimili á vegum Frostaskjóls. Foreldrar/forráðamenn mæta daglega með börnin á sundnámskeið hjá KR, sem hefst kl. 8:20 í Vesturbæjarlaug. Frístundaleiðbeinendur sækja börnin í andyri Vesturbæjarlaugar að sundnámskeiði loknu og fylgja þeim tilbaka í frístundaheimilið sitt. Skilyrði fyrir því að skrá barnið í sundhóp kl. 8:20 er að barnið sé jafnframt skráð í frístundaheimilið Selið eða Skýjaborgir á sama tímabili. Athugið að skrá þarf barn bæði í frístundaheimili og á sundnámskeið með sumarfrístund í Rafrænni Reykjavík til að skráningin sé virk. Til að skrá börn á sundnámskeiðið þarf að velja tegundina ,,Sundnámskeið með sumarfrístund" og staðinn ,,Sumarstarf í Frostaskjóli".
Gjaldskrá fyrir sundnámskeið með sumarfrístund er 6.300. krónur.
1. tímabil: 11. júní -. 22. júní
2. tímabil: 25. júní - 06. júlí
4. tímabil: 07. ágúst – 17. ágúst
Nánari upplýsingar
411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is