Sumarfrístund fyrir börn fædd ´01-´04
SUMARFRÍSTUND
Í sumar verður starfsemi frístundaheimila í Grafarvogi sameinuð á þremur stöðum; Regnbogalandi í Foldaskóla, Tígrisbæ við Rimaskóla og Vík í Víkurskóla. Starfið byggir á áralangri reynslu af sumarstarfi með börnum. Allir starfsmenn hafa mikla reynslu af starfi með börnum í frístundaheimilum. Ávallt er lagt mikið upp úr útiveru, frjálsum leik, skapandi starfi og styttri sem lengri ferðum. Áhersla verður lögð á að aldursskipta hópnum þannig að börnin fáist við ólík viðfangsefni eftir aldri. Einnig verður lögð áhersla á að virkja börnin við ákvarðanatöku um val viðfangsefna.
Opið verður allan daginn frá 6. júní - 15. júlí og frá 8. ágúst - 19. ágúst. Frístundaheimilin eru opin kl. 8.00 – 17.00. Grunngjaldið er miðað við tímann milli kl. 9.00 og 16.00 en greitt fyrir viðbótarstund/-ir þess utan.
Grunngjald fyrir eina viku í sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 6.670. en verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl.16.00-17.00 kr. 1.940. Gjaldskráin í heild.
Frístundaheimilin sem bjóða upp á Sumarfrístund
Frá 2. maí verður hægt að smella á viðkomandi viku til að fara beint í skráningu í Rafrænni Reykjavík.
Regnbogaland v/Foldaskóla, s. 567 2122, 695 5192 og 695 5194 www.gufunes.is
06. júní - 10. júní
14. júní - 16. júní
20. júní - 25. júní
27. júní - 01. júlí
04. júlí - 08. júlí
11. júlí -15. júlí
08. ágúst - 12. ágúst
15. ágúst - 19. ágúst
Tígrisbær v/ Rimaskóla, s. 587 2406, 695 5196 www.gufunes.is
06. júní - 10. júní
14. júní - 16. júní
20. júní - 25. júní
27. júní - 01. júlí
04. júlí - 08. júlí
11. júlí -15. júlí
08. ágúst - 12. ágúst
15. ágúst - 19. ágúst
Vík v/ Víkurskóla, s. 411 7808, 695 5197, 695 5198 www.gufunes.is
06. júní - 10. júní
14. júní - 16. júní
20. júní - 25. júní
27. júní - 01. júlí
04. júlí - 08. júlí
11. júlí -15. júlí
08. ágúst - 12. ágúst
15. ágúst - 19. ágúst
Verð
6.670 kr. (5 dagar)
6.150 kr. (4 dagar)
5.290 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur.