Sumarsmiðjur fyrir börn fædd ´98-´00
Sumarsmiðjur Tíu12 verða í félagsmiðstöðinni Hundraðogellefu (Miðbergi), félagsmiðstöðinni Hólmaseli og Bakkanum (félagsmiðstöðinni í Breiðholtsskóla) sumarið 2011.
Tiu12 verður starfrækt í fjórar vikur í sumar frá 9. júní til 12. júlí. Hver vika verður í þemaformi sem ætti að henta öllum. Athugið að skrá þarf á hverja smiðju fyrir sig (hver smiðja getur verið eins eða tveggja daga smiðja). Við endum svo á skemmtilegri einna nætur útileigu 11. – 12. júlí.
Smiðjurnar verða starfræktar frá kl 10:00 – 15:00 alla virka daga og þurfa krakkarnir að koma með nesti og vera klædd eftir veðri. Húsið opnar kl. 9.30 og er börnunum velkomið að koma í hús og bíða þangað til að dagskrá hefst.
Athugið að aðeins 25 krakkar komast á hverja smiðju.
Skráning fer fram á Rafræna Reykjavík og hefst 2. maí. Við hvetjum ykkur til þess að sýna krökkunum hvaða smiðjur eru í boði því allir ættu að geta fundið sér margt skemmtilegt að gera í sumar. Skráning er bindandi.
Athugið að smiðjurnar verða keyrðar frá þremur stöðum, Miðbergi og Hólmaseli og Breiðholtsskóla. Það fer svo eftir skráningu hvort einhverjar smiðjur verði sameinaðar eða ekki.
Við skráningu þarf að athuga að öll skráning fyrir Breiðholtið er undir frístundamiðstöðinni Miðbergi. Þannig að þeir sem vilja mæta í Miðberg skrá sig undir Miðberg - Hundraðogellefu, þeir sem vilja mæta í Hólmasel skrá sig í Miðberg - Hólmasel og þeir sem vilja mæta í Breiðholtsskóla skrá sig undir Miðberg - Bakkinn á Rafrænni Reykjavík.
Lista og sælkeravika: 9. júní – 16. júní frá kl. 10:00 - 15:00
Fimmtudagur 9. júní. Leikir, brjóstsykursgerð og Listasmiðja
Föstudagur 10. júní. Heimsókn á Ásmundarsafn og sund í Laugardalslaug:
Verð 1000 kr
Þriðjudagur 14. júní. Grímugerð og bökunardagur.
Miðvikudagur 15. júní. Framhald af grímugerð og pizzubakstur.
Verð 1000 kr
Fimmtudagur 16. júní. Ferð á Þingvelli og heimsókn á veiðisafnið á Stokkseyri.
Verð 1000 kr.
Útivistar – og ævintýravika: 20. – 24. júní frá kl. 10.00 – 15.00
Mánudagur 20. júní. Ferð í Viðey.
Þriðjudagur 21. júní. Hjólaferð í Elliðaárdalinn og vatnsstríð milli Hólmasels, Hundraðogellefu og Bakkanns.
Verð 1000 kr.
Miðvikudagur 22. júní. Deginum eytt á ilströndinni og í Siglunesi
Fimmtudagur 23. júní. Heimsókn í Gufunesbæ, farið í klifur, strandblak, frisbee golf og fleira.
Verð 1000 kr
Föstudagur 24. júní. Leikjadagur í félagsmiðstöðinni, grillum pylsur í hádeginu.
Verð 500 kr
Íþróttavika: 27. júní – 1. júlí frá kl. 10.00 – 15.00
Mánudagur 27. júní. Tarzanleikir og fleiri skemmtilegir íþróttaleikir í íþróttasal eða úti í sólinni.
Verð 500kr
Þriðjudagur 28. júní. Bolamálun og leikir
Miðvikudagur 29. júní. Keppt í Sápukúlubandý í flottu bolunum okkar
Verð 1000kr
Fimmtudagur 30. júní. Íþróttaleikir á Klambratúni,
Verð 500 kr
Föstudagur 1. júlí. Hjólaferð í Heiðmörk og sund í Árbæjarlaug
Verð 500 kr
Óvissuvika: 4. – 8. júlí frá kl. 10.00 – 15.00.
Mánudagur 4. júlí. Óvissa á heimaslóð.
Þriðjudagur 5. júlí. Ratleikur í miðbænum og óvænt ánægja í 101 Reykjavík.
Verð 1000 kr
Miðvikudagur 6. júlí.Heimsókn í fyrirtæki og óvænt ánægja,
Fimmtudagur 7. júlí. Óvissuferð út fyrir bæinn.. gaman er að koma í K...
Verð 1000 kr
Föstudagur 8. júlí. Sund í Lágafellslaug og pizzupartý
Verð 1000 kr
Útileiga 11. júlí – 12. júlí.
Mæting í félagsmiðstöðina kl. 14 mánudaginn 11. júlí og áætluð heimkoma er kl. 12 þriðjudaginn 12. júlí.
Verð 2000 kr
Nánari upplýsingar um smiðjurnar í Miðbergi í sima 411-5750 eða á www.midberg.is