Tíu12 sumarsmiðjur fyrir börn fædd ´99-´01
Sumarsmiðjur Tíu12 verða í Miðbergi (félagsmiðstöðinni Hundrað&ellefu), félagsmiðstöðinni Hólmaseli og Breiðholtsskóla (félagsmiðstöðinni Bakkanum) sumarið 2012.
Tiu12 verður starfrækt í sex vikur í sumar frá 11. júní til 20. júlí. Hver vika verður í þemaformi sem ætti að henta öllum. Athugið að skrá þarf á hverja smiðju fyrir sig. Smiðjurnar verða starfræktar kl. 9:00 – 12:00, 13:00-16:00 eða 9:30-15:30 alla virka daga og þurfa krakkarnir að koma með nesti og vera klædd eftir veðri.
Athugið að aðeins 25 krakkar komast á hverja smiðju.
Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík og hefst 15. maí. Við hvetjum ykkur til þess að sýna krökkunum hvaða smiðjur eru í boði því allir ættu að geta fundið sér margt skemmtilegt að gera í sumar. Skráning er bindandi. Verð í smiðjurnar er 560 kr. eða 1125 kr. (eftir því hvort um er að ræða hálfa eða heila daga).
Athugið að smiðjurnar verða keyrðar frá þremur stöðum, Miðbergi og Hólmaseli og Breiðholtsskóla. Það fer svo eftir skráningu hvort einhverjar smiðjur verði sameinaðar. Þeir sem vilja mæta í Miðberg skrá sig undir Hundrað&ellefu, þeir sem vilja mæta í Hólmasel skrá sig í Hólmasel og þeir sem vilja mæta í Breiðholtsskóla skrá sig undir Bakkanum á Rafrænni Reykjavík.
Hér má sjá yfirlit yfir þær smiðjur sem verða í boði:
Vika 1
Dagsetning: Tími: Viðfangsefni: Staðsetning:
11. júní Kl. 9:00-12:00 Brjóstsykursgerð Hundraogellefu
11. júní Kl. 13:00-16:00 Sundferð Hólmasel & Bakkinn
12. júní Kl. 13:00-16:00 Minute to Win it dagur Hólmasel & Bakkinn
13. júní Kl. 9:00-12:00 Heimsókn á Domino‘s Hólmasel & Bakkinn
13. júní Kl. 13:00-16:00 Sundferð Hundraðogellefu
14. júní Kl. 13:00-16:00 Stórleikjadagur Hundraðogellefu
15. júní Kl. 9:00-12:00 Tarzanleikur Hundraðogellefu
15. júní Kl. 9:00-12:00 Sápubandý Hólmasel & Bakkinn
Vika 2
Dagsetning: Tími: Viðfangsefni: Staðsetning:
18. júní Kl. 9:00-12:00 Sápubandý Hundraðogellefu
18. júní Kl. 13:00-16:00 Hjólaferð í Árbæjarlaug Hólmasel & Bakkinn
19. júní Kl. 13:00-16:00 Stórleikjadagur Hólmasel & Bakkinn
20. júní Kl. 9:00-13:00 Brjóstsykursgerð Hólmasel & Bakkinn
20. júní Kl. 13:00-16:00 Vatnsstríð og grill Hundraðogellefu
21. júní Kl. 13:00-16:00 Mission Impossible Hundraðogellefu
22. júní Kl. 9:00-13:00 Útieldun Hundraðogellefu
22. júní Kl. 9:00-13:00 Tarzanleikir Hólmasel & Bakkinn
Vika 3
Dagsetning: Tími: Viðfangsefni: Staðsetning:
25. júní Kl. 9:00-12:00 Heimsókn á Domino‘s Hundraðogellefu
25. júní Kl. 13:00-16:00 Vatnsstríð og grill Hólmasel & Bakkinn
26. júní Kl. 13:00-16:00 Mission Impossible Hólmasel & Bakkinn
27. júní Kl. 9:00-13:00 Útieldun Hólmasel & Bakkinn
27. júní Kl. 13:00-16:00 Hjólaferð í Árbæjarlaug Hundraðogellefu
28. júní Kl. 13:00-16:00 Minute to Win it dagur Hundraðogellefu
Vikur 4-6 verða keyrðar saman frá öllum félagsmiðstöðvunum í Breiðholti. Barnið skráir sig hjá sinni félagsmiðstöð og svo hittast hóparnir og fara saman af stað.
Vika 4
Dagsetning: Tími: Viðfangsefni:
2. júlí Kl. 9:30-15:00 Klifur í Gufunesbæ
3. júlí Kl. 9:30-15:00 Sundferð í Laugardalinn
4. júlí Kl. 9:30-15:00 Hellaskoðun, hjólaferð og grill
5. júlí Kl. 9:30-15:00 Heimsókn í Viðey
6. júlí Kl. 9:30-15:00 Leikir á Klambratúni
Vika 5
9. júlí Kl. 9:30-15:00 Sjóminjasafnið og heimsókn í varðskip
10. júlí Kl. 9:30-15:00 Siglunes og Ylströnd
11. júlí Kl. 9:30-15:00 Heimsókn í fyrirtæki
12. júlí Kl. 9:30-15:00 Öldusundlaugin á Álftanesi
13. júlí Kl. 9:30-15:00 Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Vika 6
16. júlí Kl. 9:30-15:00 Wipeout í Lágafellslaug
17. júlí Kl. 9:30-15:00 Ratleikur í 101
18.-19. júlí Kl. 13:00 Útilega með Tíu12. Komið heim um hádegi þann 19. júlí.
Nánari upplýsingar um smiðjurnar í Hundraðogellefu
Nánari upplýsingar um smiðjurnar í Hómaseli og Bakkanum