Sumarfrístund fyrir börn fædd ´95-´04 í Vesturhlíð

SUMARFRÍSTUND Í VESTURHLÍÐ
Gulahlíð, Garður og Askja starfrækja sumarfrístund fyrir börn og unglinga í Öskjuhlíðarskóla og verða opin kl. 8.00–17.00 í sumar. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá kl. 9.00–16.00. Hægt er að kaupa viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 og 16.00-17.00.

Grunngjald fyrir eina viku í sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 6.670. Verð fyrir hvora viðbótarstund er 1.940 kr.

Gulahlíð, Garður og Askja verða með opið allan daginn frá 7. júní til 8. júlí og frá 2. ágúst – 19. ágúst. Boðið verður upp á fjölbreytt einstaklingsmiðað starf í sumar.

Skráning hefst 2. maí á Rafrænni Reykjavík.

Gulahlíð, s: 411-5441
Garður, s: 411 5440
Askja, s: 411-5442

Félagsmiðstöðin Askja er í samstarfi við Vinnuskólann. Ekki verður um hefðbundin vinnuskólastörf að ræða heldur verða unglingarnir skilgreindir sem vinnuskólaliðar og fá greidd laun fyrir þátttöku í sumarfrístund. Þátttökugjöld vegna sumarfrístundar verða felld niður sem hér segir:

8. bekkur – 3 vikur
9. bekkur – 3 vikur
10. bekkur – 3 vikur

Jafnframt þarf að skrá unglingana í vinnuskólann á www.vinnuskoli.is

Nánari upplýsingar

411 5400
www.tonabaer.is/Vesturhlid
vesturhlid@itr.is

Skráning

Skráning frá 2. maí á Rafrænni Reykjavík

Verð

6.670 kr. (5 dagar)
6.150 kr. (4 dagar)
5.290 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði