Sumarfrístund fyrir börn fædd ´96-´05 í Vesturhlíð
SUMARFRÍSTUND Í VESTURHLÍÐ
Gulahlíð, Garður og Askja starfrækja sumarfrístund fyrir nemendur Klettaskóla og verða opin kl. 8.00–17.00 í sumar. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá kl. 9.00–16.00. Hægt er að kaupa viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 og 16.00-17.00.
Grunngjald fyrir eina viku í sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 7.510. Verð fyrir hvora viðbótarstund er 2.185. kr.
Gulahlíð, Garður og Askja verða með opið allan daginn frá 11. júní til 20. júlí og frá 7. ágúst – 17. ágúst. Boðið verður upp á fjölbreytt starf í sumar.
Skráning stendur yfir frá 28. mars – 15. apríl, eftir það er hægt að skrá á biðlista í Rafrænni Reykjavík.
Gulahlíð, s: 411-5441
Garður, s: 411 5440
Askja, s: 411-5442
Félagsmiðstöðin Askja er í samstarfi við Vinnuskólann. Ekki verður um hefðbundin vinnuskólastörf að ræða heldur verða unglingarnir skilgreindir sem vinnuskólaliðar og fá greidd laun fyrir þátttöku í sumarfrístund. Þátttökugjöld vegna sumarfrístundar verða felld niður sem hér segir:
9. bekkur – 3,5 tímar í 3 vikur
10. bekkur – 7 tímar í 3 vikur
Jafnframt þarf að skrá unglingana í vinnuskólann á www.vinnuskoli.is
Skráning
Skráning frá 28. mars-15. apríl, eftir það er hægt að skrá á biðlista Rafrænni Reykjavík
Verð
5 dagar kr. 7.510, viðbótarstund kr. 2.185
4 dagar kr. 6.925, viðbótarstund 1.890 kr.
Veittur er 20% systkinaafsláttur.