Sumarfrístund fyrir börn með fötlun fædd ´95-´00

Frístundaklúbburinn Hofið býður upp á sumarfrístund fyrir börn og unglinga með fötlun á aldrinum 10–16 ára. Sumarfrístund í Hofinu stendur yfir 7. júní - 8. júlí og 2. ágúst - 19. ágúst.

Frístundaklúbburinn Hofið er staðsettur í Sólheimum 35 í austurbæ Reykjavíkur og þjónustar börn og unglinga sem ganga í almenna grunnskóla vestan Elliðaáa.

Mikið er lagt upp úr lýðræði þegar kemur að vali á tómstundum þar sem ungmennin eru hvött til að láta í ljós skoðanir sínar og áhugamál. Styrkleikar hvers og eins eru látnir njóta sín og ungmennin efld varðandi sjálfsákvarðanir.

Tilgangur frístundaklúbbsins er að sporna við félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna sem hafa oft á tíðum ekki sömu tækifæri og ófatlaðir til tómstundaiðkana og félagslífs á eigin forsendum.
 
Klúbburinn hefur góða aðstöðu innanhúss fyrir ýmsa tómstundaiðkun eins og að spila, lesa, lita, mála, horfa á sjónvarp nú eða slaka á og spjalla í kósý herberginu. Boðið er upp á útiveru eins oft og kostur er sem og styttri og lengri vettvangsferðir.

Frístundaklúbbarnir eru fyrir ungmenni með fötlun (í umönnunarflokkum 1-3 skv. skilgreiningu Tryggingastofnunar) í almennum grunnskólum fædd 1995-2000.

Sumardagskráin verður fjölbreytt og aldursmiðuð með áherslu á áhugasvið hvers og eins. Allir frístundaklúbbarnir verða í nánu samstarfi í sumar.

Frístundaklúbbarnir eru í samstarfi við Vinnuskólann. Ekki verður um hefðbundin vinnuskólastörf að ræða heldur verða unglingarnir skilgreindir sem vinnuskólaliðar og fá greidd laun fyrir þátttöku í sumarfrístund. Þátttökugjöld vegna sumarfrístundar verða felld niður sem hér segir:

9. bekkur – 3 vikur
10. bekkur – 3 vikur

Jafnframt þarf að skrá unglingana í vinnuskólann á www.vinnuskoli.is

Frístundaklúbburinn Hofið er opin frá kl. 8.00–17.00. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 9.00–16.00. Hægt er að velja um mismunandi dvalartíma:

kl. 8.00–16.00    kl. 9.00–16.00     kl. 9.00–17.00     kl. 8.00–17.00

Grunngjald fyrir eina viku í sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 6.670. Þar sem hægt er að velja um mislangan vistunartíma er verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl.16.00-17.00 kr. 1.940.

Skráning hefst 2. maí á Rafrænni Reykjavík.

Frístundaklúbburinn Hofið, Sólheimum 35, 664-7774, kristjana.jokumsen@reykjavik.is

Skráning

Skráning frá 2. maí á Rafrænni Reykjavík

Verð

6.670 kr. (5 dagar)
6.150 kr. (4 dagar)
5.290 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði