Sumarfrístund fyrir börn með fötlun fædd ´96-´01
Frístundaklúbburinn Hofið býður upp á sumarfrístund fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10–16 ára. Sumarfrístund í Hofinu stendur yfir 11. júní - 20. júlí og 7. ágúst - 17. ágúst.
Frístundaklúbburinn Hofið er staðsettur í Sólheimum 35 í austurbæ Reykjavíkur og þjónustar börn og ungmenni sem ganga í almenna grunnskóla vestan Elliðaáa.
Tilgangur frístundaklúbbsins er að sporna við félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna og kynna fyrir þeim fjölbreyttar tómstundir. Klúbburinn býður uppá fjölbreytta afþreyingu innanhúss en í sumarstarfinu leggjum við áherslu á útiveru, sund og hreyfingu. Börnin eru hvött til að taka þátt í því sem er í boði að hverju sinni, en einnig er boðið uppá einstaklingsmiðaða dagskrá fyrir þá sem það kjósa.
Sjá nánari dagskrá sumarstarfsins hér.
Frístundaklúbbarnir eru fyrir fötluð ungmenni (í umönnunarflokkum 1-3 skv. skilgreiningu Tryggingastofnunar) í almennum grunnskólum fædd 1996-2001.
Frístundaklúbbarnir eru í samstarfi við Vinnuskólann. Ekki verður um hefðbundin vinnuskólastörf að ræða heldur verða unglingarnir skilgreindir sem vinnuskólaliðar og fá greidd laun fyrir sérstök verkefni í sumarfrístund. Þátttökugjöld vegna sumarfrístundar verða felld niður sem hér segir:
9. bekkur – 3 vikur
10. bekkur – 3 vikur
Jafnframt þarf að skrá unglingana í vinnuskólann á www.vinnuskoli.is
Frístundaklúbburinn Hofið er opin frá kl. 8.00–17.00. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 9.00–16.00. Hægt er að velja um mismunandi dvalartíma:
kl. 8.00–16.00 kl. 9.00–16.00 kl. 9.00–17.00 kl. 8.00–17.00
Grunngjald fyrir eina viku í sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 7.510. Þar sem hægt er að velja um mislangan vistunartíma er verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl.16.00-17.00 kr. 2.185.
Skráning hefst 28. mars á Rafrænni Reykjavík.
Frístundaklúbburinn Hofið, Sólheimum 35, 664-7774, audur.bjork.h.kvaran@reykjavik.is
Skráning
Skráning frá 28. mars - 15. apríl, en eftir það er hægt að skrá á biðlista á Rafrænni Reykjavík
Verð
5 dagar kr. 7.510, viðbótarstund kr. 2.185
4 dagar kr. 6.925, viðbótarstund 1.890 kr.
Veittur er 20% systkinaafsláttur.