Sumarfrístund fyrir börn með fötlun fædd ´95-´00

Frístundaklúbburinn Höllin er staðsettur í Egilshöll og er með starf fyrir 10–16 ára börn og unglinga með fötlun sem sækja almenna skóla í Grafarvogi og Grafarholti. Höllin hóf störf haustið 2007.

Höllin verður með skemmtilegt og fjölbreytt starf í sumar. Þátttakendur koma til með að skipuleggja dagskrá í samvinnu við starfsmenn og verður mikið lagt upp úr ferðum um borgina sem og rólegum og notalegum stundum.

Frístundaklúbburinn leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni ungmenna til að móta sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður.

Lögð er áhersla á  að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.  Komið er til móts við hvern og einn með einstaklingsmiðaðri þjónustu.

Opið verður allan daginn frá 6. júní - 15. júlí og frá 8. ágúst - 19. ágúst. Höllin er opin kl. 8.00 – 17.00. Grunngjaldið er miðað við tímann milli kl. 9.00 og 16.00 en greitt fyrir viðbótarstund/-ir þess utan.

Grunngjald fyrir eina viku kl. 9.00-16.00 er kr. 6.670. en verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl.16.00-17.00 kr. 1.940. Gjaldskráin í heild.

Frístundaklúbburinn Höllin í Egilshöll, Gufunesbæ, 695 5189, asdis.sigurjonsdottir@reykjavik.is
06. júní - 10. júní
14. júní - 16. júní
20. júní - 25. júní
27. júní - 01. júlí
04. júlí -08. júlí
11. júlí -15. júlí

08. ágúst - 12. ágúst
15. ágúst - 19. ágúst

Skráning hefst 2. maí og fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík á www.rafraen.reykjavik.is og er skráð fyrir vikudvöl í senn.

Í samstarfi við Vinnuskóla Reykjavíkur býður Höllin unglingum í 9. og 10. bekk að taka vinnuskólatengd verkefni samhliða sumarstarfi eftir starfstíma og launakjörum Vinnuskóla Reykjavíkur:

  • Nemendur í 9. bekk vinna í 3,5 tíma á dag í 3 vikur.
  • Nemendur í 10. bekk vinna í 7 tíma á dag í 3 vikur.

Þeir sem hafa áhuga á að taka vinnuskólatengd verkefni í Höllinni þurfa einnig að sækja um hjá Vinnuskóla Reykjavíkur á www.vinnuskoli.is en ráðgert er að skráning hefjist í apríl.

Ef hætt er við þátttöku án þess að tilkynnt hafi verið um forföll með formlegum hætti til ÍTR á miðvikudegi fyrir upphaf dvalar, þá mun gjald verða innheimt að fullu.

Athugið að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarf á vegum ÍTR.

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið í frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð við skráningu. Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf í gegnum síma. Starfsfólk þjónustumiðstöðva, frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411 1111) getur þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.

Nánari upplýsingar

520 2300
www.gufunes.is
gufunes@gufunes.is

Skráning

Skráning frá 2. maí á Rafrænni Reykjavík

Verð

6.670 kr. (5 dagar)
6.150 kr. (4 dagar)
5.290 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði