Sumarnámskeið ÍTR
Gufunesbær

Frístundamiðstöðin Gufunesbær

v/ Gufunesveg

112 Reykjavík

520 2300

gufunes@gufunes.is

http://www.gufunes.is

Sumarfrístund fyrir börn með fötlun fædd ´96-´01

Frístundaklúbburinn Höllin er staðsettur í Egilshöll og er með starf fyrir 10–16 ára börn og unglinga með fötlun sem sækja almenna skóla í Grafarvogi og Grafarholti. Höllin hóf störf haustið 2007.

Höllin verður með skemmtilegt og fjölbreytt starf í sumar. Þátttakendur koma til með að skipuleggja dagskrá í samvinnu við starfsmenn og verður mikið lagt upp úr ferðum um borgina sem og rólegum og notalegum stundum.

Frístundaklúbburinn leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni ungmenna til að móta sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður.

Lögð er áhersla á  að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.  Komið er til móts við hvern og einn með einstaklingsmiðaðri þjónustu.

Opið verður allan daginn frá 11. júní - 20. júlí og 7. - 17. ágúst. Höllin er opin kl. 8.00 – 17.00. Grunngjaldið er miðað við tímann milli kl. 9.00 og 16.00 en greitt fyrir viðbótarstund/-ir þess utan.

Grunngjald fyrir eina viku kl. 9.00-16.00 er kr. 7.510. en verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl.16.00-17.00 kr. 2.185. Gjaldskráin í heild.

Frístundaklúbburinn Höllin í Egilshöll, Gufunesbæ, 695 5189, asdis.sigurjonsdottir@reykjavik.is
 

Skráning fór fram 28. mars - 15. apríl, en eftir það er hægt að skrá á biðlista. Skráningin fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík á https://rafraen.reykjavik.is/pages/notandi/umsoknir/skraningisumarfristund/?idega_session_id=5d722d51-431b-4e73-b8fa-8896196a7280&iw_language=is_IS og er skráð fyrir vikudvöl í senn.

Í samstarfi við Vinnuskóla Reykjavíkur býður Höllin unglingum í 9. og 10. bekk að taka vinnuskólatengd verkefni samhliða sumarstarfi eftir starfstíma og launakjörum Vinnuskóla Reykjavíkur:

  • Nemendur í 9. bekk vinna í 3,5 tíma á dag í 3 vikur.
  • Nemendur í 10. bekk vinna í 7 tíma á dag í 3 vikur.

     

Þeir sem hafa áhuga á að taka vinnuskólatengd verkefni í Höllinni þurfa einnig að sækja um hjá Vinnuskóla Reykjavíkur á www.vinnuskoli.is en ráðgert er að skráning hefjist í apríl.

Ef hætt er við þátttöku án þess að tilkynnt hafi verið um forföll með formlegum hætti til ÍTR á miðvikudegi fyrir upphaf dvalar, þá mun gjald verða innheimt að fullu.

Athugið að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarf á vegum ÍTR.

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið í frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð við skráningu. Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf í gegnum síma. Starfsfólk þjónustumiðstöðva, frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411 1111) getur þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.

Til baka

Nánari upplýsingar

411 5600
www.gufunes.is
gufunes@gufunes.is

Skráning

Skráning frá 28. mars - 15. apríl, en hægt að skrá á biðlista eftir það á Rafrænni Reykjavík

Verð

5 dagar kr. 7.510, viðbótarstund kr. 2.185
4 dagar kr. 6.925, viðbótarstund 1.890 kr.
Veittur er 20% systkinaafsláttur.

  • Senda námskeið á vin
  • Prenta
© 2012 ÍTR

Slóð: http://www.reykjavik.is/sumar/desktopdefault.aspx/tabid-3008/4788_read-11084/