Íþrótta- og sumarskóli fyrir 6-11 ára
Skólinn er fyrir krakka á aldrinum 6 ára (f. 2005) til og með 11 ára (f. 2000). Íþróttaskólinn verður starfandi í Egilshöll, Fossaleyni 1 og Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum 2.
Um er að ræða þrjú tveggja vikna námskeið. Námskeiðin verða alla virka daga frá kl. 09.00–15.00. Hægt að skrá þátttakendur í gæslu kl. 08.00-09.00 og/eða 15.00-16.00.
Lögð er sérstök áhersla á þær íþróttagreinar sem eru iðkaðar hjá félaginu ásamt því verður farið í ýmsa leiki og sund svo eitthvað sé nefnt. Heitur matur í hádeginu er innifalinn í þátttökugjaldinu, gott er að hafa með sér smá aukabita til hafa í millibita að morgni og um kaffileytið.
NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Námskeið 1: 06. júní - 16. júní* styttra námskeið
Námskeið 2: 20. júní - 01. júlí
Námskeið 3: 18. júli – 29. júlí
*Frí 13.júní Annar í hvítasunnu og 17. Júní
SKRÁNING OG VERÐ
Skráningar á námskeiðin fer fram á vef félagsins www.fjolnir.is og hefst mánudaginn 9. maí. Þátttökugjald er 15.000/12.000* kr. fyrir hvert námskeið, námskeiðisgjald greiðist við skráningu.
Gæsla frá kl. 08.00- 09.00 og til kl.16.00 eftir að námskeiði lýkur kostar aukalega 1500/1200 * krónur hvort eða 3000/2400* ef tekið er bæði morgun og eftir hádegis gæsla.
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar varðandi starfsemi íþróttafélagsins á heimasíðu félagsins, www.fjolnir.is .
Verð
15.000 / 12.000 kr.
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Námskeiðisgjald greiðist viðskráningu á vefnum.