Sumaropnanir félagsmiðstöðva fyrir unglinga

Sumaropnanir félagsmiðstöðva í Laugardal og Háaleiti fyrir unglinga í 8. - 10. bekk

Frístundamiðstöðin Kringlumýri býður uppá félagsmiðstöðvaopnanir á fjórum stöðum í sumar fyrir unglinga í Laugardals og Háaleitis hverfi, í Þróttheimum, Laugó, Bústöðum og Tónabæ. Í hverfinu geta unglingar sótt 2 kvöldopnanir og 4 dagopnanir á viku. Þessar opnanir eru hugsaðir fyrir unglinga sem eru fædd ´95-´97 úr Álftamýrarskóla, Hvassaleitisskóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla Réttarholtsskóla og Vogaskóla.

Í sumar verður boðið upp á skipulagða dagskrá ásamt opnu starfi. Nánari upplýsingar á heimasíðum félagsmiðstöðvanna og á Facebook síðu þinnar félagsmiðstöðvar.

Sumarhátíðir barna- og unglingastarfs í hverfinu verða annarsvegar 24.júní og hins vegar 8.júlí eru fyrir börn og unglinga í hverfinu á aldrinum 10-16 ára. Grill, leikir og fjör. Engin aðgangseyrir og engin skráning.

www.kringlumyri.is
www.throttheimar.is
www.tonabaer.is/tono
www.bustadir.is
www.kringlumyri.is/laugo
www.kringlumyri.is/buskinn

Nánari upplýsingar

411 5400
www.kringlumyri.is
kringlumyri@reykjavik.is

Nánari upplýsingar

411 5400
www.kringlumyri.is
kringlumyri@itr.is

Skráning

Engin skráning, nema í ferðir.

Verð

Frítt, nema í ferðir.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði