Knattspyrnuskóli Fjölnis
Skólinn verður haldinn á æfingasvæði/heimavelli okkar í og við Egilshöllina, Fossaleyni 1. Stendur hvert námskeið yfir í eina viku (5 daga). Yfirþjálfarar á námskeiðunum verða Sigfús Heimisson, menntun UEFA B, þjálfari 5. flokks karla/kvenna og Daníel Jóhannsson, menntun KSÍ 5, þjálfari 3.og 4. flokks kvenna ásamt aðastoðar þjálfurum.. Skólinn er fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6 til 14 ára. Tekið er á móti krökkunum frá kl. 8:00 í Sportbitanum, námskeiðin hefjast svo stundvíslega kl. 8:30 og eru til klukkan 12:00. Börnin geta komið með hádegissnarl með sér og borðað í Sportbitanum eftir að námskeiði lýkur . Á föstudögum er svo glens og gaman, leynigestur og pizzuveisla.
1. námskeið: 11. júní – 15. júní
2. námskeið: 18. júní – 22. júní
3. námskeið: 25. júní – 29. júní
4. námskeið: 2. júlí – 6. júlí
5. námskeið: 9. júlí – 13. júlí
6. námskeið: 7. ágúst – 10. ágúst (4 dagar)
SKRÁNING OG VERÐ
Skráningar á námskeiðin fer fram á heimasíðu félagsins www.fjolnir.is undir linknum iðkendaskráning. Opnað verður fyrir skráningar 1. maí . Þátttökugjald er 6.000kr. fyrir hvert námskeið, námskeiðisgjald verður að vera greitt fyrir upphaf námskeiðs. Nánari upplýsingar á www.fjolnir.is og á skrifstofu Fjölnis í síma 578-2700
Verð
6.000
Námskeiðisgjald verður að vera greitt fyrir upphaf námskeiðs.