Útilífsskóli fyrir 8-12 ára

Árbær, Norðlingaholt, Selás og Ártún.

Skátafélagið Árbúar hefur síðustu ár boðið upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann. Námskeiðin byggja mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru sund, stangveiði, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða tveggja vikna námskeið með helgarfríi. Í lok seinni vikunnar er einnar nátta útilega. Einnig er hægt er að skrá sig á bara aðra vikuna. Önnur er án útilegu en hin með útilegu.

Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti klæddir eftir veðri og með nesti fyrir daginn. Þá daga sem námskeiðin eru haldin innanbæjar stendur dagskráin yfir frá kl. 9.00 til 16.00. Farið er í útileguna kl. 10.00 á fimmtudegi og komið til baka kl. 16.00 á föstudegi. Þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins og útilegunnar í upphafi námskeiðs.

Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 1999 til 2003.

Útilífsnámskeið Skátaheimili Árbúa, Hraunbæ 123
Í sumar eru eftirfarandi námskeið í boði
Námskeið 1,   06. júní - 10. júní og 14. júní - 16. júní* útilega.
Námskeið 2,   20. júní - 24. júlí og 27. júní - 1. júlí, útilega.
Námskeið 3,   04. júlí - 08. júlí og  11. júlí - 15. júlí útilega.
Námskeið 4,   18. júli - 22. júlí
Námskeið 5,   15. ágúst - 19. ágúst, útileiga

*(Þriggja daga vika án útilegu)

Systkinaafsláttur er 20% frá verði og er endurgreiddur við mætingu. Innifalið í verði er öll dagskrá, rútukostnaður, sundferðir og gisting. Þá fá allir þátttakendur viðurkenningu í lok námskeiðs. Þátttökugjöld skal greiða eigi síðar en á fyrsta degi námskeiðs. Tekið er á móti debet og kreditkortum.

Nánari upplýsingar

550 9800
www.utilifsskoli.is
arbuar@skatar.is

Verð

Útilífsnámskeið 2 vikur með útilegu 16.900 kr. (Námskeið 1 : 15.400 kr.)
Útilífsnámskeið 1 vika með útilegu 11.200 kr.
Útilífsnámskeið 1 vika án útilegu 8.800 kr.
*(Fjögurra daga vika án útilegu 6.900 kr.)
20% systkinaafsláttur


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði