Sumarnámskeið ÍTR
Skátafélagið Árbúar

Skátafélagið Árbúar

Hraunbæ 123

110 Reykjavík

586 1911

arbuar@skatar.is

http://arbuar.123.is/

Útilífsskóli fyrir 8-12 ára

 

Árbær, Norðlingaholt, Selás og Ártún.

Skátafélagið Árbúar hefur síðustu ár boðið upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann. Námskeiðin byggja mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru sund, stangveiði, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða tveggja vikna námskeið með helgarfríi. Í lok seinni vikunnar er einnar nátta útilega. Hægt er að skrá sig á eingöngu á aðra vikuna. Önnur er án útilegu en hin með útilegu.

Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti klæddir eftir veðri og með nesti fyrir daginn. Þá daga sem námskeiðin eru haldin innanbæjar stendur dagskráin yfir frá kl. 9.00 til 16.00. Farið er í útileguna kl. 10.00 á fimmtudegi og komið til baka kl. 16.00 á föstudegi. Þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins og útilegunnar í upphafi námskeiðs.

Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 2000 til 2004.

Útilífsnámskeið Skátaheimili Árbúa, Hraunbæ 123
Í sumar eru eftirfarandi námskeið í boði
Námskeið 1,   11. - 15. júní og 18. -22. júní, útilega.

Námskeið 2,   25. – 29. júní og 2. – 6. júlí, útilega.

Námskeið 3,   9. -13. júlí og 16. – 20. júlí, útilega.
Námskeið 4,   13. - 17. ágúst. Ein vika án útilegu.

Skráning er á http://utilifsskoli.is
Þátttökugjöld eru:
Útilífsnámskeið 2 vikur með útilegu  16.900 kr.-
Útilífsnámskeið 1 vika með útilegu  11.200 kr.-
Útilífsnámskeið 1 vika án útilegu 8.800 kr.-


Systkinaafsláttur er 20% frá verði og er endurgreiddur við mætingu. Innifalið í verði er öll dagskrá, rútukostnaður, sundferðir og gisting. Þátttökugjöld skal greiða eigi síðar en á fyrsta degi námskeiðs. Tekið er á móti debet og kreditkortum.

 

Til baka

Nánari upplýsingar

550 9800
www.utilifsskoli.is
arbuar@skatar.is

Skráning


www.utilifsskoli.is

Verð

Útilífsnámskeið 2 vikur með útilegu 16.900 kr. (Námskeið 1 : 15.400 kr.)
Útilífsnámskeið 1 vika með útilegu 11.200 kr.
Útilífsnámskeið 1 vika án útilegu 8.800 kr.
20% systkinaafsláttur

  • Senda námskeið á vin
  • Prenta
© 2012 ÍTR

Slóð: http://www.reykjavik.is/sumar/desktopdefault.aspx/tabid-3008/4788_read-21922/