Á morgun laugardaginn 13. ágúst verður sannkölluð tónlistarveisla í plötuverslunum í miðborg Reykjavíkur.
samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík taka 12 Tónar, Smekkleysa, Lucky Records og Reykjavík Record Shop höndum saman og bjóða upp á tónleikadagskrá í verslununum frá kl 13 til 17. Verkefnið er stutt af Sumarborginni Reykjavík. Hver viðburðurinn rekur annan þannig að fólk getur gengið á milli verslana og notið allra tónlistaratriðanna, svolítið eins og að vera á lítilli tónlistarhátíð.
Dagskráin er eftirfarandi:
Kl 13: Hróðmar Sigurðsson og Ingibjörg Elsa Turchi í Reykjavík Record Shop
Kl 14: Börn í Smekkleysu
Kl 15: Mr. Silla í 12 Tónum
Kl 16: Skrattar í Lucky Records
Aðgangur ókeypis!