Frítt í sund fyrir börn og tilraun um miðnæturopnun í Laugardalslaug

Heilsa Íþróttir og útivist

Frítt verður fyrir börn í sundlaugar borgarinnar

Frítt verður í sundlaugar Reykjavíkurborgar fyrir börn á grunnskólaaldri frá og með 1. ágúst 2022. Borgarráð samþykkti í dag svohljóðandi tillögu menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Einnig var samþykkt tillaga um miðnæturopnun á fimmtudagskvöldum í Laugardalslaug, frá og með 4. ágúst næstkomandi, til áramóta.

Í samstarfssáttmála Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar segir í fyrstu aðgerðum að ókeypis verði í sund fyrir börn á grunnskólaaldri; aðgengi borgarbúa á öllum aldri að sundlaugum borgarinnar sé brýnt lýðheilsumál. Þessu verður nú hrint í framkvæmd og verður jafnframt boðið upp á endurgreiðslu á kortum sem foreldrar og forráðamenn hafa keypt, jafnt 10 miða kortum og 6 eða 12 mánaða kortum fyrir börn. Kostnaðarauki vegna þessa á árinu er áætlaður 12 milljónir króna auk allt að 7,4 milljóna í endurgreiðslur. Kostnaðarauki fyrir árið 2023 er áætlaður 30 milljónir króna. 

Góð sundlaugamenning gerð enn betri

Miðnæturopnun á fimmtudagskvöldum, það er til klukkan 24, í Laugardalslaug verður tilraunaverkefni til áramóta og lagt verður mat á reynsluna við undirbúning fjárhagsáætlunar 2023. Er verkefnið einnig hluti af fyrstu aðgerðum meirihlutans samkvæmt meirihlutasáttmála og gera má ráð fyrir að kostnaðarauki vegna þessa til áramóta verði 2,5 milljónir króna, um 6 milljónir á ársgrundvelli. Vonast er til að miðnæturopnunin geri góða sundlaugamenningu borgarinnar enn litskrúðugri og skemmtilegri.