Leiðarljós nýrrar borgarhönnunarstefnu verður græn lífsgæðaborg í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur. Umhverfis- og skipulagsráðs samþykkti í dag að láta vinna borgarhönnunarstefnu sem fjalli með einföldum og skýrum hætti um gæði borgarrýmis og byggðar. Á meðal þess sem verður tekið á í stefnunni eru birtuskilyrði, gæði dvalarrýma, skuggavarpsgreiningar og gróðurþekja á uppbyggingarsvæðum. Samhliða stefnunni verða unnir formlegir gátlistar fyrir hönnuði og aðra sem koma að mótun borgarrýmis.
Hvað er borgarhönnunarstefna?
- Skilgreinir gæði og borgarmynd.
- Tryggir heildstæða mynd borgarlandsins og styrkir karakter borgarlandslagsins. Hvað er Reykjavíkurrými?
- Stendur vörð um gæði í uppbyggingu og endurnýjun eldri byggðar.
- Setur kröfur um hlutfall grænna innviða.
- Skýrir verklagsreglur í hönnun og uppbyggingu.
- Einfaldar ferla, ef leikreglurnar eru skýrar þá er leikurinn léttari.
Af hverju að gera stefnu?
- Til að skapa heildstæða borgarmynd með sérkennum Reykjavíkur.
- Borg sem fólk tengir við og þykir vænt um.
- Borg sem fólk vill búa í.
- Borg sem er nútímaleg og er byggð til langs tíma.
- Borg sem er byggð með tilliti til loftslags og náttúru.
- Borg sem á sögu og segir sögu.
Litið til nágrannalanda
Starfshópur mun vinna drög að stefnunni í samráði við umhverfis- og skipulagsráð. Litið verður til grænna lífsgæðaáherslna í arkitekta- og borgarhönnunarstefnum í borgum nágrannalandanna og settur fram skýr rammi um hönnun almenningsrýmis í þágu virkra ferðamáta og græns yfirbragðs.
Vinnan verður í takt við fyrirliggjandi stefnur borgarinnar. Unnar verða viðeigandi greiningar og úrbætur á verkferlum eftir þörfum. Áhersla verður lögð á samráð og samtal við hagaðila.
Gæði almannarýmis og byggðar
Í greinargerð með tillögunni er lýst hvernig borgarhönnunarstefnan taki á gæðum bæði almannarýmisins og byggðarinnar. Á meðal þess sem verður tekið tillit til er algild hönnun, lágmarksbreidd gangstétta og hjólastíga, mismunandi skilgreiningar gatna og jarðvegsþykkt á bílakjöllurum með tilliti til gróðurskilyrða. Einnig verða gerðar kröfur til gæða og fjölbreytni byggðar með áherslu á gæði íbúða hvað varðar birtuskilyrði, skuggavarpsgreiningar, loftgæði, heilnæmt umhverfi og takmörkun á hljóðmengun.
Úrbætur á verkferlum
Tilgangurinn er að bæta og skýra verkferla á bæði skipulags- og framkvæmdastigi. Samhliða stefnunni verða unnir formlegir gátlistar fyrir hönnuði og aðra sem koma að mótun borgarrýmis. Hluti af vinnunni verða frekari úrbætur á verkferlum í þágu gangandi og hjólandi.