Harður vetur og heimsfaraldur setja strik í rekstur Reykjavíkurborgar á fyrsta ársfjórðungi

Fjármál

Reykjavík horft yfir tjörnina

Heimsfaraldur, snjóþyngsli, sértæk velferðarþjónusta og aukin fjármagnsgjöld vegna hækkandi verðbólgu setja strik í uppgjör Reykjavíkurborgar á fyrstu þremur mánuðum ársins. Rekstrarniðurstaða A-hluta er neikvæð um 1.899 m.kr. umfram áætlun.

Fjármála- og áhættustýringasvið Reykjavíkurborgar lagði í dag fram óendurskoðað rekstraruppgjör A-hluta fyrir tímabilið janúar til mars 2022.

Rekstrarniðurstaða A-hluta er neikvæð um 4.793 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 2.894 m.kr. á tímabilinu.

Lakari rekstrarniðurstaða skýrist af auknum launa- og rekstrarútgjöldum sem að hluta til má rekja til afleiðinga af heimsfaraldri kórónaveiru í upphafi ársins, sem krafðist meiri mönnunar og yfirvinnu í velferðarþjónustu og skólastarfi en gert var ráð fyrir, en frávik í launum vegna þessa er metið á um 317 m.kr. Þá var vetrarþjónusta 451 m.kr. yfir fjárheimildum vegna snjóþyngsla á tímabilinu. Gjöld vegna vistunar barna með alvarlegar þroska- og geðraskanir voru 326 m.kr. yfir fjárheimildum. Fjármagnsgjöld að frádregnum fjármunatekjum voru 910 m.kr. yfir fjárheimildum einkum þar sem verðbólga var töluvert hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 2.706 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.717 m.kr. þannig að niðurstaðan var 989 m.kr. undir áætlun.

Rekstraruppgjörið var lagt fram í borgarráði í dag í samræmi við tímaáætlun um framlagningu á mánaðar- og árshlutauppgjörum ársins 2022. Uppgjörið er gert í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og reglugerð um bókhald, fjármál og ársreikninga sveitarfélaga.