Innköllun: Twix og Bounty ís.

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

Innköllun: Mars og Bounty ís

Sláturfélag Suðurlands, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Twix og Bounty ís.

Ástæða innköllunar:

Varnarefnið ethylene oxíð var notað við framleiðslu á innihaldsefni sem síðan var notað við framleiðslu á ísunum.  Ethylene oxíð er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu.

Hver er hættan?

Ethylene oxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en efnið hefur erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Bounty
  • Vörumerki: Twix
  • Vöruheiti: Ice Cream, 6 stykkja pakkning
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 31-08-2022
  • Lotunúmer: 038E1DOE01
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: Mars Wrigley
  • Vöruheiti: Ice Cream, 6 stykkja pakkning
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 31-07-2022
  • Lotunúmer: 031F3DOE02
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: Mars Wrigley

Það er Sláturfélag Suðurlands, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, sem innkallar vöruna.

Um dreifingu sjá:

Twix:

  • Extra Ice Akureyri/Skeljungur hf.
  • Extra Ice Keflavík/Skeljungur hf.
  • Fjarðarkaup
  • Hagkaup
  • Heimkaup
  • Herðubreið Seyðisfirði
  • Ísbúðin Háaleiti
  • Kaupfélag Skagfirðinga/Sauðárkróki
  • Kaupfélag V-Hún K.H. Hvammstanga
  • Ungó

Bounty:

  • Extra Ice Akureyri/Skeljungur hf.
  • Extra Ice Keflavík/Skeljungur hf.
  • Eyjafjarðarsveit sundlaugar
  • Fjarðarkaup
  • Hagkaup
  • Herðubreið Seyðisfirði
  • Heimkaup
  • Ísbúðin Háaleiti
  • Ísbúðin Akureyri Geislagötu
  • Kaupfélag Skagfirðinga/Sauðárkróki
  • Kaupfélag V-hún K.H. Hvammstanga
  • Kauptún ehf. Vopnafjörður
  • Olís básinn Keflavík

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreind matvæli eru beðnir um að neyta þeirra ekki heldur farga. Nánari upplýsingar um innköllun veita Gunnar og Snorri hjá Sláturfélagi Suðurlands í síma 575 6000 eða í gegnum netföngin gunnarg[hja]ss.is eða snorri[hja]ss.is.