Landsréttur staðfestir ógildingu á úrskurði sem leiddi til lokunar hleðslustöðva

Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Hleðslustöð fyrir bíla.

Landsréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um ógildingu úrskurðar kærunefndar útboðsmála frá 11. júní 2021 í máli nr. 44/2020 um lögmæti útboðs á uppsetningu og rekstri hleðslustöðva fyrir rafbíla í hverfum Reykjavíkur.

Orka náttúrunnar ohf.(ON) var hlutskörpust í útboðinu en Ísorka ehf., sem var einnig þátttakandi í útboðinu, beindi kæru um lögmæti útboðsins til kærunefndar útboðsmála.Í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 44/2020 var meðal annars samningur Reykjavíkurborgar og ON sem gerður var á grundvelli hins kærða útboðs lýstur óvirkur og Reykjavíkurborg gert að greiða stjórnvaldssekt. ON höfðaði mál til að fá hnekkt úrskurði kærunefndar útboðsmála og gerði Reykjavíkurborg, sem var aðili að dómsmálinu, jafnframt þá kröfu.

Í niðurstöðu Landsréttar er fallist á með héraðsdómi að kærufrestur hafi verið liðinn er Ísorka ehf. hafði uppi kröfu um óvirkni samningsins. Kærunefnd útboðsmála hafi því verið óheimilt að taka þá kröfu til meðferðar. Sú niðurstaða nefndarinnar að taka kröfuna til greina var talin slíkur annmarki á málsmeðferð hennar að óhjákvæmilegt væri að mati Landsréttar að staðfesta niðurstöðu héraðsdóms um ógildingu úrskurðarins.