Þarf að „rampa upp“ í þínu hverfi?

forsíða verkefnisins um að bæta aðgengi fatlaðs fólks í hverfum borgarinnar.

Nú er óskað eftir tillögum frá borgarbúum um hvar megi bæta aðgengi fatlaðs fólks í þeirra hverfi hvort sem það er við skóla, sundlaugar eða bara við hverfasjoppuna.

Flestir þekkja til verkefnis Haraldar Þorleifssonar um að Rampa upp Reykjavík en hann ásamt Reykjavíkurborg hefur staðið fyrir því að nú er búið að setja upp á annað hundrað rampa í miðborginni til að auðvelda aðgengi fatlaðs fólks.

Í kjölfar þess verkefnis var ákveðið að Rampa upp Ísland og bæta aðgengi fatlaðs fólks bæði í úthverfum borgarinnar og öðrum sveitarfélögum.

Íbúar í Reykjavík geta nú farið inn á samráðsvef borgarinnar og hver og einn valið sitt hverfi og sagt til um hvar megi bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða í hverfinu.

Tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum í hverfum borgarinnar í samráði við íbúana.