Ingunnarskóli
Grunnskóli, 1.-10. bekkur
Maríubaugur 1
113 Reykjavík
Skóladagatal Ingunnarskóla
Hér finnur þú skóladagatal Ingunnarskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.
Matur í grunnskólum
Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili.
Um Ingunnarskóla
Í Ingunnarskóla er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur í nýju hverfi í útjaðri borgarinnar þar sem stutter í skemmtilega náttúru sem nýtt er í daglegu starfi og leik. Áhersla er lögð á útikennslu sem samþætt er í allar greinar. Skólinn er þátttakandi í verkefninu um Grænfánann en í því verkefni er lögð áhersla á ábyrga hegðun gagnvart umhverfinu, innan skólans sem utan. Einkunnarorð Ingunnarskóla eru virðing - ábyrgð - vinsemd
Frístundaheimilið Stjörnuland er fyrir börn í 1.-4. bekk við Ingunnarskóla og félagsmiðstöðin Fókus býður upp á skemmtilegt og fjölbreytt starf fyrir börn og unglinga.
Skólastjóri er Guðlaug Erla Gunnarsdóttir
Aðstoðarskólastjóri er Þuríður Guðrún Sigurjónsdóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Ingunnarskóla er: Guðmunda Gunnlaugsdóttir
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Skólastarfsemi
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Ingunnarskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi.
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Ingunnarskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Skólaráð
Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélagsins um skólahald. Skólastjóri stýrir ráðinu og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráðið fundar að jafnaði einu sinni í mánuði á skólatíma.
Skólaráð Ingunnarskóla 2022-2023
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri
Fulltrúar kennara:
Signý Ingadóttir
Þuríður Aðalsteinsdóttir
Varamaður: Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir
Fulltrúar foreldra:
Dagbjört Rut Bjarnadóttir
Magnea Kristín Ómarsdóttir
Varamaður: Áslaug Karen Jóhannsdóttir
Fulltrúi starfsmanna:
Kristín Ragnarsdóttir
Fulltrúi samfélagsins:
Áshildur Böðvarsdóttir
Fulltrúar nemenda:
Lovísa Una Bryngeirsdóttir, 10. bekk
Kristófer Tómas Gíslason, 9. bekk
Bjarni Þór Benediktsson, 8. bekk
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.
Foreldrafélag Ingunnarskóla
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
Gísli Freyr Valdórsson
Jónas Ingi Jónasson
Sigríður R. Pétursdóttir
Rakel Ýr Káradóttir
Skólahverfi Ingunnarskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Ingunnarskóla.