Hlemmur - 2026-2027

Framkvæmdir við norðursvæði Hlemms og Borgarlínu um Hlemm eru hafnar en stefnt er að því að þeim verði lokið fyrir árslok 2027. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu. Komið verður fyrir góðri aðstöðu fyrir virka ferðamáta, torgrými, hjólastíg og setaðstöðu.
Áætlaður framkvæmdatími: Október 2026 til ársloka 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Hvað verður gert?

Meðal annars á að endurgera gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu og götukafla Snorrabrautar frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Nýtt torgsvæði verður gert beggja vegna Borgarlínuássins og Borgarlínuleið lögð í gegnum Hlemmtorg með nýrri Borgarlínustöð.

Samhliða verða fráveitulagnir endurnýjaðar með aðskildu kerfi fyrir regnvatn og skólp, auk endurnýjunar vatns- og hitaveitu, raf- og fjarskiptalagna, lýsingar og umferðarljósa.

  • Gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu verða endurgerð.
  • Götukafli á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu verður endurgerður.
  • Gerð torgsvæðis norðan borgarlínuáss og gerð torgsvæðis sunnan borgarlínuáss frá Snorrabraut og austur fyrir Hlemm mathöll.
  • Gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu stoppistöðvar Borgarlínu á svæðinu.
  • Endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljósa.

Hvernig gengur?

Október 2026

Gengið hefur verið til samninga við Gröfu og grjót ehf. sem mun framkvæma þennan hluta endurnýjunar Hlemmtorgs.

 

Mars 2026

Verkefnið er í undirbúningi og útboð í verkið verða opnuð í mánuðinum. 

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds

Verkefnisstjóri Veitna

Hákon Róbert Jónsson
Last updated 21.10.2026