Fjölbreytt dagskrá á UNGLIST 2026
Unglist 2026, listahátíð ungs fólks hefst laugardaginn 31. október næstkomandi og stendur til 7. nóvember. Frítt er inn á alla viðburði.
UNGLIST - Listahátíð ungs fólks, er vettvangur fyrir upprennandi listafólk til að láta ljós sitt skína og hefja menningu ungs fólks á aldrinum 16-25 ára til vegs og virðingar.
Dansinn dunar, hljóðfæri eru þanin, söngurinn ómar, leikarar etja kappi í spuna, fyrirsætur spranga um tískupalla og óheft myndsköpun og skáldskapur eiga sinn fasta sess á hátíðinni. Unglist er hátíð þar sem fjölbreytileikinn þrífst og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ungu fólk gesfst einstak tækifæri á að koma menningu ungs fólks á framfæri og sýna listsköpun sína allt frá hugmynd til framkvæmdar.
Meðal dagskrárliða er Leikhúsfestival í Tjarnarbíói, Dans pop up og Kór og klór í sundhöllinni, Kvikyndi – stuttmyndahátíð og Listasmiðjur þar sem nemendur á myndlistarbraut FB sýna verk sín.
Iceland Airwaves off-venue verður í Hinu Húsinu þar sem grasrót í íslensku tónlistarsenunni tekur yfir sviðið í Elliðaárdalnum og flytur fjölbreytta tónlist. Að lokum er það svo tískusýningin Éclat þar sem fatahönnuðir framtíðarinnar á hönnunar- og klæðskerabraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Tækniskólann sýna afrakstur vinnu sínnar.
Frítt er inn á alla viðburði Unglistar.
Unglistin hefur allt frá upphafi verið haldin af Hinu Húsinu, miðstöð ungs fólks, sem heyrir undir menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar.
Andaðu að þér ferskum andblæ framtíðarlistar!
Öll velkomin!