Tíu ára afmæli Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar fagnað

Ungmennaráð Hinsegin félagsmiðstöðvar.

Það var hátíðleg stemning þegar tíu ára afmæli Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar var fagnað í gær. Ungmenni, starfsfólk, fjölskyldur og gestir komu saman í tilefni tímamótanna og var boðið upp á fjölbreytta dagskrá og veitingar.

Þrumudætur.
Þrumudætur stigu á stokk.

Þrumudætur og hvatningarverðlaun settu svip sinn á dagskrána

Hljómsveitin Þrumudætur steig á stokk og flutti kraftmikla tónlist og ungmennaráð Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar veitti þrenn hvatningarverðlaun til einstaklinga sem eiga hrós skilið vegna þess sem þeir hafa lagt af mörkum til starfsins og stuðnings við hinsegin börn og ungmenni.

Snæ Humadóttir hlaut hvatningarverðlaun meðal annars fyrir ötula baráttu fyrir tilveru Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar. Sigríður Birna Valsdóttir, teymisstýra ráðgjafaþjónustu Samtakanna '78, hlaut verðlaun fyrir stuðning sinn við trans og kynsegin börn.

Ungmennaráð Hinsegin félagsmiðstöðvar.
Snæ Humadóttir tók við hvatningarverðlaununum sem ungmennaráðið veitti henni fyrir flotta framgögnu.

Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, sem hefur starfað þar frá upphafi, hlaut einnig hvatningarverðlaun. Meðlimir ungmennaráðsins lýstu með hlýjum orðum hversu mikilvæg Hrefna hefði verið þeim og hvaða áhrif stuðningur hennar og starf félagsmiðstöðvarinnar hefði haft á líf þeirra. Stundin var áhrifamikil og féllu tár við afhendinguna.

Að fá að tilheyra getur skipt sköpum

Í tilefni afmælisins talaði Íris Lind, sem er foreldri barns sem sækir félagsmiðstöðina, um upplifun sína af félagsmiðstöðinni og starfinu sem þar fer fram. Hún beindi sjónum að mikilvægi þess að börn og ungmenni fái að tilheyra, upplifa öryggi, viðurkenningu og rými til að vera þau sjálf.

Íris lýsti því þegar sonur hennar kom fyrst í Hinsegin félagsmiðstöðina fyrir tveimur árum. Hann fékk frábærar móttökur og hélt áfram að mæta. „Hann hafði fundið sína þjóð,“ sagði Íris þegar hún lýsti upplifun hans.

Íris minnti á þær samfélagsbreytingar sem orðið hafa á nokkrum áratugum. Hún rifjaði upp þegar vinkona hennar sótti ungmennakvöld Samtakanna '78 sem ungmenni að þá hafi verið algengt að ungmenni leyndu foreldra sína hvert þau væru að fara. Í dag væri staðan gjörbreytt því á kvöldin væri bílaplanið við Hinsegin félagsmiðstöðina fullt af foreldrum sem bíða í bílum fyrir utan til að sækja börnin sín. Það þýði þó ekki að vinnunni væri lokið og áfram þyrfti að standa vörð um réttindi, viðurkenningu og öryggi hinsegin fólks.

„Árangur mikilvægs samfélagsstarfs er ekki alltaf mældur í skýrslum eða Excel-skjölum. Stundum sést hann í barni sem áður fann sig ekki með jafnöldrum sínum en hefur nú fundið sína þjóð,“ sagði Íris að lokum.

Til hamingju með tíu árin!

Mynd af starfsfólki Hinsegin félagsmiðstöðvar.
Starfsfólk Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar. Efri röð frá vinstri: Silja Sól, Magnús, Vilhjálmur, Hrefna, Bjartur. Neðri röð frá vinsri: Issy og Katla.