Opið hús og samráð um skiplag í Höllum
Skipulagsvinna í Höllum er að hefjast, framtíðarsýn er í mótun og þróun nýs hverfis. Fyrstu hugmyndir voru kynntar í skipulagsgátt í lok árs 2025 en vinningstillaga Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA, bar sigur úr bítum í hugmyndaleit um þróun skipulags vorið 2026.
Markmið uppbyggingar er að efla húsnæðismarkað og nýta land vel með blandaðri og fjölbreyttri byggð, tengdri góðum almenningssamgöngum og náttúrugæðum svæðisins.
Opið hús í bókasafni Dalsskóla
Opið hús verður haldið tvisvar í bókasafni Dalsskóla, þriðjudaginn 17. nóvember kl. 16:30-18:30 og laugardaginn 21. nóvember kl. 12-14. Þetta er liður í samráðsferli við íbúa og hagsmunaaðila við þróun skipulagsins. Höfundar tillögunnar og starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur verða á staðnum til að svara spurningum gesta .