Sæmundarskóli og Dalsskóli bætast við í úrslit Skrekks
Tveir skólar komast inn í úrslit Skrekks sem svokallað óvænt útspil eða „wild card“ á hverju ári. Í ár eru það Sæmundarskóli og Dalsskóli sem bætast við þá sex skóla sem komust í úrslit á undanúrslitakvöldunum þremur.
Nú er því orðið ljóst hvaða átta skólar munu keppa til úrslita mánudagskvöldið 16. nóvember á stóra sviði Borgarleikhússins. Það eru, auk Dalskóla og Sæmundarskóla, Árbæjarskóli, Breiðholtsskóli, Hlíðaskóli, Klébergsskóli, Langholtsskóli og Norðlingaskóli.
Atriði Dalskóla, Gríman, fjallar um að allir eigi skilið að tilheyra og að vera eins og þeir eru. Atriði Sæmundarskóla, Sýndarmennska, fjallar fyrst og fremst um hræsni í nútímasamfélagi.
232 ungmenni í Reykjavík munu taka þátt á úrslitakvöldinu. Í heildina er 791 þátttakandi í Skrekk í ár. Öll atriðin má sjá á vef UngRUV.is.
Myndir tók Anton Bjarni.
Forsíðumyndin er af atriði Dalsskóla.