Veistu um skóla- eða tónlistarstarf sem á skilið að fá hrós og hvatningu?
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar veitir árlega hvatningarverðlaun fyrir verkefni sem unnin eru í skólastarfi í Reykjavík. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs 2027. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 8. janúar 2027.
Tilnefna má nýbreytni- og þróunarverkefni um hvaðeina í skóla- og tónlistarstarfi í Reykjavík eða verkefni hópa er átt hafa frumkvæði að góðu starfi sem er öðrum til hvatningar, einnig verkefni tengd stefnumótun og skipulagi, foreldrasamstarfi eða öðru samstarfi.
Gerðar hafa verið þær breytingar að nú verður einnig hægt að tilnefna verkefni á vegum skólahljómsveita og tónlistarskóla ásamt starfi í grunnskólum eins og verið hefur.
Markmiðið að lyfta upp því sem vel er gert
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á því gróskumikla skóla- og tónlistarstarfi sem fram fer í borginni. Verðlaunin eiga að veita starfsfólki jákvæða hvatningu og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru viðurkenning á vel unnu verki í þágu barna og fjölskyldna og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir grunnskóla- og tónlistarstarf. Að auki hefur verið veitt viðurkenning fyrir samstarfsverkefni.
Öll geta tilnefnt til hvatningarverðlaunanna, til dæmis starfsfólk í skóla- og tónlistarstarfi, samtök og stofnanir, foreldrar, börn og ættingjar þeirra.