Borgarstjóri felldi 13 metra sitkagrenitré sem fer á Austurvöll
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri felldi hið svokallaða Oslóartré á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Reykjavíkur síðasta laugardag.
Þetta var myndarlegt sitkagrenitré sem verður svo sett upp á Austurvelli og jólaljósin tendruð á trénu á fyrsta í aðventu þann 29. nóvember næstkomandi. Borgarstjóri fékk góða leiðsögn við verkefnið frá Skógræktinni sem gekk að óskum. Við mælingu reyndist tréð rúmlega 13 metra hátt.
Oslóarborg gaf Reykjavíkurborg lengi vel jólatré sem var siglt með frá Noregi frá 1951. En síðan 2014 hefur tréð verið fellt í Heiðmörk til að minnka kolefnisspor.