Stórafmælum fagnað í Hvassaleitisskóla og Breiðagerðisskóla
Hvassaleitisskóli og Breiðagerðisskóli fögnuðu báðir stórafmælum í síðustu viku. Breiðagerðisskóli fagnaði 70 ára afmæli og Hvassaleitisskóli 60 ára afmæli.
Á hátíðardaginn komu nemendur Hvassaleitisskóla saman í sal skólans og héldu því næst í skrúðgöngu um hverfið ásamt trommuleikurum úr Skólahljómsveit Austurbæjar. Síðar um daginn var opið hús þar sem fjölmargir starfsmenn, fyrrverandi nemendur og velunnarar skólans litu við, hittust og rifjuðu upp gamla tíma.
Í Breiðagerðisskóla var einnig mikið um að vera. Töframaður heimsótti skólann á hátíðardaginn og foreldrafélagið bauð nemendum upp á djús og ís. Síðar um daginn var opið hús sem var vel sótt. Fjölmargir fyrrverandi nemendur á öllum aldri litu við og margir stöldruðu lengi við, hittu gamla skólafélaga og rifjuðu upp góðar minningar frá skólaárunum.
Myndin efst í fréttinni er af Iðunni Pálu Guðjónsdóttur skólastjóra Hvassaleitisskóla og Steini Jóhannssyni sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs.