Sundleikfimi í Dalslaug á föstudögum

Dalslaug

Sundleikfimi er byrjuð í Dalslaug og fer fram alla föstudaga frá kl. 11:00. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá sem felur í sér vatnsþjálfun, sundkennslu og einstaklingsbundna heilsu- og lífstílsráðgjöf.

Umsjón með dagskránni hefur Sara Katrín Kristjánsdóttir, íþróttafræðingur, hjúkrunarfræðingur og ballettkennari. Sara hefur jafnframt umsjón með vatnsþjálfun í Hátúni.

Dagskrá alla föstudaga

  • Kl. 11:00–11:40: Sundleikfimi og vatnsþjálfun
  • Kl. 11:50–12:30: Sundkennsla og sundæfingar
  • Kl. 12:45–13:15: Einstaklingsbundin heilsu- og lífstílsráðgjöf

Sundleikfimin er ætluð eldra fólki en þátttaka er opin öllum, óháð aldri.

Sundlaugar Reykjavíkur bjóða upp á sundleikfimi í sjö sundlaugum borgarinnar. Nánari upplýsingar um tímasetningar og heildardagskrá má nálgast hér: