Göngugötur í Kvosinni í aðdraganda jóla
Jólastemningin er áberandi í miðborginni nú þegar aðventan er á næsta leyti. Eins og gestir og gangandi í miðborginni hafa væntanlega tekið eftir þá hefur jólamarkaður risið í Pósthússtræti við Austurvöll. Í tengslum við fjölgun gangandi gesta er bílaumferð óleyfileg í hluta Kvosarinnar á opnunartíma markaðar.
Heimilt verður að að aka suður Pósthússtræti frá Tryggvagötu að Hafnarstræti.
Þyngri lokanir verða notaðar til að tryggja öryggi á Pósthússtræti við Kirkjustræti, Vallarstræti og Hafnarstræti, sem og á Hafnarstræti við Tryggvagötu í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Opnunartími markaðar:
- 26. nóv. kl. 16:00–20:00
- 27. nóv. kl. 13:00–20:00
- 28.–29. nóv. kl. 13:00–20:00
- 3. des. kl. 16:00–20:00
- 4 –6. des. kl. 13:00–20:00
- 10. des. kl. 16:00–20:00
- 11–13. des. kl. 13:00–20:00
- 17. des. kl.16:00–20:00
- 18.–20. des. kl. 13:00–20:00
- 21.–22. des. kl. 16:00–20:00
- 23. des. kl. 14:00–23:00