Bjartahlíð/Hamraborg - Endurgerð lóðar 2026

Verkið snýr að endurgerð á lóð leikskólans Bjartahlíð/Hamraborg við Grænuhlíð 24, 105 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á norður hluta leikskólalóðar en það svæði er u.þ.b 1500 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru drenun við byggingu, jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða. lagning snjóbræðslu og frágangur í kringum leiktæki. Áætluð verklok 11. Nóvember. Stærstur hluti er drenframkvæmd.
Júlí - Nóvember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir Bjartahlíð/Hamraborg 2026

Hvað verður gert?

Stærsti hluti framkvæmdar er drenframkvæmd við leikskólabyggingu. Aðrir þættir framkvæmdar snúa að jarðvinnu (drenframkvæmd sem og utan drenframkvæmdar (jarðvegsskipta undir hellulögn sem ekki er yfir dreni), landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða. lagning snjóbræðslu og frágangur í kringum leiktæki. Áætluð verklok 11. Nóvember. 

Hvernig gengur?

Júlí 2026

Verk hefst í síðari hluta mánaðarins. 

Verktaki kemur sér fyrir og setur upp aðstöðu. 

Byrjað verður á drenhluta framkvæmdar, drenað verður í kringum byggingu og fráveitulögnum skipt út.    

Ágúst 2026

Uppgröftur og upprif í fullum gangi, klárað að grafa í kringum vesturhluta byggingar. Byrjað að koma fyrir brunnum. Fleyga þarf meira en gert var ráð fyrir.

September 2026

Upprif á eldri skólplögnum klárað, upprif klárað á vesturhluta lóðar. Drenlagnir lagðar og brunnum komið fyrir á vesturhluta lóðar (fyrri hluti verks), byrjað á drenfyllingum vestan megin.

Síðast uppfært 05.10.2026