Annar áfangi framkvæmda við Nauthólsveg og HR að hefjast
Nú er að hefjast annar áfangi framkvæmda við uppbyggingu innviða við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík (HR). Áfram verður tryggt aðgengi fyrir akandi, gangandi og hjólandi vegfarendur auk almenningssamgangna á framkvæmdatímanum.
Framkvæmdasvæði verktaka breytist þannig að við bætast svæði vestan Nauthólsvegar auk þess sem núverandi Menntasveigur lokast og verður vinnusvæði. Þetta hefur engin áhrif uppsetningu bráðabirgða göngu- og hjólastíga gegnum framkvæmdasvæðið frá áfanga eitt og ekki önnur áhrif á akstur en þau að Menntasveigur lokast og akstri er beint um bráðabirgðavegi gegnum bílastæði sunnan Menntasveigs.
Ein akrein verður áfram opin í hvora átt og stoppistöðvar Strætó verða áfram í notkun en kunna að færast til eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.
Áætlað er að framkvæmdir í öðrum áfanga standi frá 30. október 2026 til 1. maí 2027. Upplýsingum um breytingar á umferðarfyrirkomulagi verður miðlað reglulega eftir því sem framkvæmdum vindur fram.
Framkvæmdirnar eru samstarfsverkefni Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna. Verktaki er Grafa og grjót ehf. og verkfræðistofan EFLA hefur eftirlit með verkinu.
- Hægt er að fylgjast með framgangi verkefnisins á framkvæmdasíðunni.