Flest rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar aftur í gagnið í dag og um helgina

Ráðhús Reykjavíkur í snjór og fuglar í forgrunni

Stefnt er að því að koma flestum rafrænum þjónustukerfum Reykjavíkurborgar aftur í gagnið í dag og um helgina eftir alvarlega netárás sem gerð var á miðvikudaginn. 

Kjarnakerfi og önnur mikilvæg kerfi eru í forgangi í þessari vinnu til að draga úr áhrifum röskunarinnar á íbúa og starfsfólk borgarinnar. Síðustu kerfi gætu farið í gang strax eftir helgi.

Borgin tók þjónustukerfin tímabundið úr sambandi til að hefta útbreiðslu árásarinnar og verja kerfi og gögn. Starfsfólk vinnur nú með sérfræðingum Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS að því að yfirfara kerfin og tryggja að óhætt sé að taka þau aftur í notkun. Vinnan felur meðal annars í sér að skipta um öll lykilorð og aðgangslykla í viðkomandi kerfum.

Unnið er að því að greina hvernig árásaraðilar komust inn í kerfin og hvaða gögn þeir kunna að hafa nálgast. Frekari upplýsingar birtast hér á vefnum eftir því sem staðan skýrist.