Friðarsúlan tendruð í Viðey 9. október

Tendrun Friðarsúlunnar í Viðey

Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20.00. Frítt er í Viðeyjarferjuna og fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur. Skráning er nauðsynleg á viðburðinn.

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í tuttugasta sinn á morgun föstudaginn 9. október næstkomandi. Í eyjunni verður friðsæl athöfn með tónlistarflutningi Árnýjar Margrétar og ávarpi borgarstjóra auk þess sem boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir. Ferðir út í Viðey eru í boði höfundar listaverksins, Yoko Ono og hefjast frá Skarfabakka klukkan 17:30.

Friðarsúlan er eftir Yoko Ono og var reist í Viðey árið 2007. Verkið er sterkt kennileiti í borginni og þörf áminning til okkar allra um að halda á lofti hugsjónum friðar, sérstaklega nú þegar stríð geisa víða um veröldina. Yoko Ono skapaði Friðarsúluna til að halda á lofti þeim friðarboðskap sem hún og eiginmaður hennar John Lennon töluðu fyrir og tileinkaði honum verkið sem logar frá fæðingardegi hans 9. október til 1. janúar 2027.

Samgöngur
Siglingar frá Skarfabakka - Viðey klukkan 17.30 – 19.15. 
Siglt frá Viðey að Skarfabakka klukkan 20.30-22.00. 
Frítt er í ferjuna, en skráning í báta nauðsynleg hjá Eldingu 
Skrá sig í bát hjá Eldingu.


Strætó
Frítt er með Strætó frá Ráðhúsi Reykjavíkur að Skarfabakka (30 mín fresti) frá klukkan 17.30 – 19.00
Strætó frá Skarfabakka að Ráðhúsinu (á 30 mínútna fresti) frá klukkan 20:30–21:30
Viðeyjarstofa verður opin frá klukkan 17:30 og þar verður hægt að kaupa léttar veitingar.

Dagskrá

Leiðsagnir og listasamiðja
17:30 Listasmiðja verður í Nausti og er á vegum Listasafns Reykjavíkur fram að tendruninni. 

Upphafsstaður allra leiðsagna er við Viðeyjarstofu:
17:45 Leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono 
18:00 Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur
18:45 Leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.
19:00 Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Dagskrá við Friðarsúluna
19:45 Árný Margrét flytur tónlist við Friðarsúluna
19:58 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri flytur ávarp
20:00 Friðarsúlan tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono
Tendrun Friðarsúlunnar - viðburður á Facebook

Óskatré um frið
Ljóskeila Friðarsúlunnar sem lýsir upp kvöldhiminn á upptök sín í óskabrunni en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum, sem er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon. Eins og á við um mörg listaverk Yoko Ono er verkið ekki aðeins hlutur tengdur einum stað og stund heldur á það sér tengingar við annað verk eftir listakonuna; það er „Óskatré“ sem finna má víða um heim, þátttökuverk þar sem fólk skrifar niður óskir sínar um um frið og farsæld og hengir á trén. Óskunum er safnað saman og eru þær varðveittar í Friðarsúlunni. Undir Friðarsúlunni liggja hátt í milljón óskir sem safnast hafa frá fólki alls staðar að úr heiminum. Óskatré verða í Ráðhús Reykjavíkur, þar getur fólk hengt óskir sínar á trén.