Hlemmur - aðlaðandi borgarrými fyrir fólk
Hlemmtorg gegnir lykilhlutverki í bættu aðgengi almenningssamgangna og virkra ferðamáta að miðborginni. Þar verður um leið grænt og aðlaðandi borgarrými fyrir fólk. Sérstök áhersla verður á leiksvæði, aðgengi fyrir öll, gróður og tækifæri til dvalar.
Staða framkvæmda og hönnunar á Hlemmi var kynnt í umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar 21. október.
Norðurpóll
Framkvæmd fer senn að ljúka á rýminu við „Norðurpól“, húsinu sem flutt verður aftur á torgið nærri þeim stað þar sem það var byggt. Gott aðgengi, uppfylltar aðgengiskröfur og góð aðstaða til útiveitinga er í öndvegi á torgsvæðinu fyrir framan Norðurpól.
Leikhöllin
Grunnur fyrir leikhöllina er komin, en leikhöllin mun standa við hlið Norðurpóls. Stálvirki bæði sviðs og leikhallar er á leið í framleiðslu en leiktækin sjálf eru á leið til landsins.
Hjólahús
Hjólahúsið er einnar hæðar bygging með tveggja hæða hjólalausn, byggingin er létt skýli sem verður sett upp við hlið Gasstöðvarinnar við Rauðarárstíg. Markaðskönnun mun verða send út fyrir mögulega rekstraraðila.
Hlemmur vestur
Hlemmur mathöll fær nýja ásýnd og aðstaða fyrir sorphirðu verður bætt til muna, einnig verður þar aðstaða fyrir töskugeymslu ferðamanna. Gott aðgengi verður að byggingum, setaðstaða og gróður mun setja sinn svip á svæðið. Klukkuturn sem áður stóð við strætóbiðstöðina á Hlemmi verður settur upp aftur og nú þegar er búið að flytja Klyfjahestinn á betri stað.
Á torginu verður einnig mannvirki Veitna og Reykjavíkurborgar fyrir stjórnkerfi lagna og snjóbræðslu. Áferðin verður pólerað stál.
Hlemmur norður í framkvæmd
Áætlað að framkvæmdir á vegum borgarinnar, Betri samgangna og Veitna hefjist fljótlega, sjá frétt um það hér og kynningu á Hlemmtorgi: