Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á laugardag

Hrekkjavökuskraut

Hrekkjavökunni verður fagnað 24. og 31. október í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem gestum gefst kostur á að taka þátt í fjölbreyttri og spennandi dagskrá.

Á fyrsta vetrardegi, 24. október, verður dagskráin undir yfirskriftinni Draugar og skrímsli. Þar leiðir þjóðfræðingurinn Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir gesti í sérstaka drauga- og skrímslagöngu um garðinn þar sem sagt verður frá verum úr íslenskri þjóðtrú. Á leiðinni mæta gestir persónum úr sögunum sem birtast þeim á óvæntum stöðum í samstarfi við Pilkington Props og Hringleik. Gangan hefst við inngang garðsins klukkan 16:30 og 17:30.

Sama dag verður einnig opið völundarhús þar sem ungir leikarar úr nærumhverfi garðsins leiða gesti í gegnum ævintýralega draugasögu. Hleypt verður inn í hópum á tíu mínútna fresti frá klukkan 16:30 til 18:30. Auk þess býðst gestum að taka þátt í skapandi grímusmiðju undir stjórn Þykjó.

Hrekkjavökuskreyting

Á Hrekkjavökunni, 31. október, tekur við fjölskylduvæn dagskrá frá kl. 15 til 17 þar sem boðið verður upp á hrekkjavökuandlitsmálun og búningadiskó undir stjórn DJ Dóru Júlíu. Völundarhúsið verður einnig opið og mun skapa spennandi umgjörð fyrir gesti á öllum aldri.

Báða dagana verður kveikt upp í báli þar sem gestir geta notið notalegrar hauststemningar í kringum opinn eld. Þar verður boðið upp á sykurpúða og annað góðgæti.

Með viðburðunum vill Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn bjóða fjölskyldum upp á skemmtilega og eftirminnilega samveru þar sem þjóðsögur, leiklist, sköpun og hrekkjavökustemning sameinast í einstöku umhverfi garðsins. Hefðbundinn aðgangseyrir gildir. 

Draugar og skrímsli: 24. október kl. 16:00-19:00

Hrekkjavaka: 31. október kl. 15:00-17:00

Viðburður: Hrekkjavaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum