Hrekkjavaka um alla borg

Hrekkjavökuskreyting

Hrekkjavaka er á morgun og hefur hátíðin fest sig í sessi og víða er boðið upp á viðburði og dagskrá í tilefni dagsins.

Það er orðin hefð fyrir því hérlendis að á hrekkjavöku klæðist börn og fullorðnir skrautlegum og oft skelfilegum búningum.

Skrímsli, vampírur og aðrar dularfullar verur skríða út úr skúmaskotum sínum til að hrella þá sem á vegi þeirra verða og banka gjarnan á dyr til að sníkja góðgæti. 

Draugalegar skreytingar eru á húsum og gróðri og útskorin grasker lýsa upp myrkrið. 

Gróðurhúsið á Lækjartorgi er komið í hrekkjavökubúning og víða er boðið upp á dagskrá í tilefni dagsins.

Keltneskur siður

Hrekkjavaka er hátíðisdagur ættaður frá keltum og er haldinn hátíðlegur 31. október ár hvert, daginn fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar.

Á Írlandi og Skotlandi var hefð fyrir því að á hrekkjavöku var kertaljósum komið fyrir í útskornum næpum eða rófum. Bæði unglingar og fullorðnir fóru á milli húsa klæddir búningum með grímur og gerðu öðrum gjarnan einhvern grikk í leiðinni.

Ófrýnileg vera í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi hræðir vegfarendur á hrekkjavöku í ár
Ófrýnileg vera í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi hræðir vegfarendur á hrekkjavöku í ár

Þegar Írar og Skotar fluttust búferlum til Ameríku á 19. öld fluttist hrekkjavakan með þeim. Með tímanum hafa graskerin tekið við af næpunum á hrekkjavökuhátíðinni í Bandaríkjunum og svo er víðast hvar annars staðar. 

Grikk eða gott

Í Reykjavík verður hrekkjavökudagskrá víða í boði um allar borg. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður með skelfilega dagskrá í garðinum, í Grasagarðinum verður listasamiðja á hrekkjavökunni og bókasöfnin bjóða upp á hrekkjavökusmiðjur.

Draugar eru allsráðandi á hrekkjavöku
Draugar eru allsráðandi á hrekkjavöku.

Víða í hverfum borgarinnar eru viðburðir í boði og nú er hægt að merkja hús sín inn á kort til að láta vita að þar sér góðgæti í boði fyrir góðan grikk. Draugalegar skreytingar eru alls ráðandi, útskorin grasker standa gjarnan við útidyrahurð húsa og húsráðendur eru sjálfir í draugalegum búningum.

Minnum alla á að fara varlega, búa sig eftir veðri og skemmta sér hryllilega vel!

Hrekkjavökur í hverfum: 

Hrekkjavökudagskrá: