Jólaljósin tendruð á Oslóartrénu á Asturvelli
Jólaljósin á Oslóartrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli á fyrsta sunnudegi í aðventu þann 29. nóvember 16:00.
Jólatréð, sem er gjöf frá Oslóarborg, var fellt í Heiðmörk fyrr í þessum mánuði. Tréð er liðleg a12 metra hátt sitkagrenitré og skreytt með 20.000 ljósum, 120 gylltum jólakúlum og á toppnum er falleg jólastjarna.
Tendrun jólaljósanna markar upphaf jólahátíðarinnar í hugum og hjörtum borgarbúa. Á Austurvelli verður jólaleg stemmning þar sem tónlist, söngur, tröll og jólasveinar verða í aðalhlutverki.
Dagskrá:
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur aðventu- og jólalög frá klukkan 15:30.
Tufti og tröllabörnin mæta á Austurvöll til að gleðja gesti og gangandi.
Ragnheiður Gröndal og Króli ásamt hljómsveit munu flytja falleg jólalög.
Anna Dåsnes borgarfulltrúi í Osló flytur kveðju frá Oslóarborg og afhendir norskar barnabækur, þýddar á íslensku, sem gefnar verða á skólabókasöfn í grunnskólum Reykjavíkur.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, flytur þakkarræðu og norsk-íslenska stúlkan Idunn Anda, mun aðstoða við að tendra ljósin á trénu.
Jólasveinarnir stelast í bæinn til að syngja og skemmta kátum krökkum.
Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir, leikkona, og verður dagskráin túlkuð á táknmáli.
Öll velkomin!