Óperudagar eru hafnir
Óperudagar í Reykjavík standa yfir frá 25. október til 1. nóvember næstkomandi. Það má eiginlega segja að borgin breytist í óperusvið þessa daga.
Óperudagar er hátíð og vettvangur klassískra söngvara og þeirra samstarfsfólks sem vilja í sameiningu og samstarfi efla og styrkja óperu-, söng- og tónlistarleikhússenuna á Íslandi.
Markmiðið með hátíðinni er að standa fyrir vönduðum og fjölbreyttum viðburðum á venjulegum og óvenjulegum stöðum; stuðla að nýsköpun og tilraunum, efla starfsgrundvöll söngvara og þeirra samstarfsfólks; kalla eftir innlendu og alþjóðlegu samstarfi og taka vel á móti nýjum og gömlum áhorfendahópum.
Raddir rafmagna rými
Á Óperudögum í ár verður rafmögnuð orka skoðuð frá ýmsum hliðum. Við lifum í heimi sem er stöðugt í sambandi: hann er hlaðinn upplýsingum, áreiti, átökum og óvissu en líka fegurð, sköpunarkrafti, nánd og von. Orka getur vissulega verið bæði jákvæð og neikvæð – hún getur leitt fólk saman, ýtt því í sundur eða komið einhverju óvæntu af stað.
Klassískar söngraddir umbreyta þeim rýmum sem þær hljóma í. Þær geta verið stórar eða smáar, mjúkar eða kraftmiklar, fínlegar, fallegar og viðkvæmar – jafnvel svakalegar eða yfirþyrmandi.
Þegar lifandi raddir hljóma í rýmum og hljóma fyrir aðrar manneskjur myndast tengingar og eitthvað fer á hreyfingu - hugurinn, tilfinningarnar, minningarnar og meðvitundin.
Á hátíðinni bjóðum við gestum að aftengjast hinu daglega áreiti um stund, stinga sér í samband við klassíska sönglist í ólíkum birtingarmyndum og upplifa hvernig órafmagnaðar raddir rafmagna rými.