Samvera og gleði í nýjum unglingaskóla
Vel hefur gengið hjá nemendum og starfsfólki eftir að Korpuskóli í Grafarvogi varð sérstakur unglingaskóli fyrir börn úr Klettaskóla. Breytingin hefur fært unglingana meira saman og ný aðstaða félagsmiðstöðvarinnar Öskju hefur sömuleiðis reynst vel. Nánast allir unglingarnir sækja félagsmiðstöðina og margir koma þangað daglega.
Elín Arndís Gunnarsdóttir settur skólastjóri segir nýja fyrirkomulagið hafa farið vel af stað. Hópurinn sé meira saman en áður og nýja húsnæðið henti þörfum unglinganna vel. „Við erum miklu meira saman hér. Allir eru á sama stað og það er miklu auðveldara að halda utan um hópinn. Krakkarnir eru sjáanlega ánægðir og það er almennt meiri gleði í hópnum,“ segir Elín.
Mjög þröngt var orðið um starfsemina í Klettaskóla enda var fjöldi nemenda þar kominn langt umfram það sem skólinn var ætlaður fyrir. Með opnun Korpuskóla fyrir unglingadeildina, sem telur um fjörutíu nemendur, fer betur um bæði þau sem fluttust uppeftir í Korpuskóla og þau sem eru áfram í Klettaskóla.
Askja vel sótt
Félagsmiðstöðin Askja er líka búin að koma sér vel fyrir í nýja húsnæðinu. Brynjar Orri Bjarnason forstöðumaður Öskju segir að aðgengi unglinganna að félagsmiðstöðinni sé gott og að nýtingin hafi verið mikil frá flutningunum.
Nánast allir unglingarnir eru skráðir í Öskju að einhverju marki og stór hópur sækir félagsmiðstöðina daglega. Þeir sem koma sjaldnar eru gjarnan í öðru tómstundastarfi eða þjónustu á sama tíma. Unglingarnir kunna vel að meta að geta einfaldlega komið saman og slakað á. Það sé líka oft það vinsælasta. „Þetta eru náttúrulega unglingar þannig að þeim finnst langskemmtilegast að tjilla,“ segir Brynjar.
Samhliða býður Askja upp á skipulagt starf á hverjum degi. Starfsfólkið reynir að hafa dagskrána fjölbreytta og má þar nefna útiveru, íþróttir, föndur og ýmis skapandi verkefni.
Gott samstarf skóla og félagsmiðstöðvar
Nýja fyrirkomulagið skapar jafnframt góð tækifæri til samstarfs skólans og Öskju. Félagsmiðstöðin getur nýtt fjölbreytta aðstöðu skólans eftir að kennslu lýkur, meðal annars íþróttasal og sérgreinastofur eftir því sem hentar hverju sinni.
Brynjar segir samstarfið við skólann gott og nýju aðstæðurnar gefi starfsfólkinu meiri möguleika á að laga starfsemina að áhuga og þörfum unglinganna.
Elín segir að fyrstu mánuðirnir á nýjum stað gefi góð fyrirheit og að til sé að verða samfélag í kringum unglingaskólann. Unglingarnir eru meira saman, Askja er vel sótt og skóla- og félagsmiðstöðvarstarfið styður vel við hvort annað.