Tama-borg í Japan og Reykjavík vinaborgir

Vinaborgarsamningur Reykjavíkur og Tama-borgar undirritaður í Höfða

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Hiroyuki Abe borgarstjóri Tama-borgar undirrituðu á dögunum vinaborgasamning í Höfða. 

Hiroyuki Abe borgarstjóri Tama-borgar heimsótti Reykjavíkurborg ásamt fimm manna sendinefnd í síðustu viku. Fóru þau í skoðunarferðir um borgina og var svo boðið í Höfða þar sem vinaborgarsamkomulagið var undirritað að viðstöddum Takewaka sendiherra Japans á Íslandi. Reykjavík er fyrsta vinaborg Tama-borgar utan Japans og er þetta fyrsti vinaborgarsamningur milli sveitarfélaga í Japan og Íslandi.

Tama-borg er hluti af stór-Tókýó-svæðinu og er í um 30 kílómetra fjarlægð frá miðborg Tókýó. Tengsl borganna tveggja eiga rætur sínar að rekja til undirbúnings fyrir Ólympíuleikana og Ólympíuleika fatlaðra í Tókýó árið 2020. Tama-borg var þá gestgjafaborg íslenska Ólympíuhópsins og Ólympíuhóps fatlaðra. Í kjölfarið þróaðist samband milli Tama-borgar og Íslands, meðal annars í samstarfi við íslenska sendiráðið í Japan.

Borgarstjórar borganna tveggja gáfu gjafir.
Hiroyuki Abe borgarstjóri Tama-borgar færði Hildi borgarstjóra fallega gjöf í tilefni tímamótanna.

Systraborgir eru borgir sem stofna til formlegs samstarfs til að efla menningarleg, efnahagsleg og félagsleg tengsl sín á milli. Meðal systurborga Reykjavíkur auk Tama-borgar eru norrænu höfuðborgirnar Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmur, Helsinki, Þórshöfn og Nuuk. Auk þeirra eru Seattle, Winnipeg, Lvív, Vilníus og Wrocław í Póllandi.