Tónlistarveislan er handan við hornið

Frá tónleikum á Iceland Airwaves árið 2025
Frá tónleikum á Iceland Airwaves árið 2025

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst á fimmtudaginn 5. nóvember til og með laugardags 7. nóvember. Hátíðin hefur fest sig í sessi og er einn af hápunktum ársins í Reykjavík.

Iceland Airwaves verða í fyrsta sinn með tónleika í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Hátíðin verður sett formlega í Tjarnarsalnum, fimmtudaginn 5. nóvember næstkomandi. Iceland Airwaves er löngu orðin ómissandi hluti af menningarlífi Reykjavíkur. Samstarf borgarinnar og hátíðarinnar hefur styrkt stöðu Reykjavíkur sem tónlistarborgar, skapað íslensku tónlistarfólki dýrmæt tækifæri og glætt miðborgina lífi á hverju hausti

Undirbúningur fyrir Iceland Airwaves í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Undirbúninur fyrir Iceland Airwaves er á fullu og mynd kominn á svið fyrir tónleikahaldið í Tjarnarsal Ráðhússins

„Það hefur ekki verið hefð fyrir því að tónleikar á vegum hátíðarinnar hafi verið haldnir í Ráðhúsinu og það er mér því mikið ánægjuefni að bjóða Ráðhúsið í fyrsta sinn sem tónleikastað fyrir hátíðina. Nú er verið að stilla upp hér í Tjarnarsal, líf að færast í húsið og við erum full tilhlökkunar.“ – Hildur Björnsdóttir borgarstjóri

Burðarás í tónlistarlífi Reykjavíkur

Iceland Airwaves var fyrst haldin árið 1999 þegar haldnir voru tónleikar í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli og víðar í borginni. Síðan þá hefur hefur hátíðin vaxið og dafnað og er ein af varanlegum borgarhátíðum Reykjavíkur og  burðarás í tónlistarlífi borgarinnar. 

Miðborgin iðar af lífi og tónlist

LilyIsThatYou var með tónleika í Listasafni Reykjavíkur á Iceland Airwves árið 2025
Kanadíska tónlistarkonan LilyIsThatYou var með tónleika í Listasafni Reykjavíkur á Iceland Airwves árið 2025. Ljósmynd: Iceland Airwaves/Aníta Eldjárn

Hluti af stemningunni sem tónleikagestir eru að sækjast eftir er að geta hlaupið á milli staða, reyna að sjá og heyra eins mikið og kostur er á meðan á hátíðinni stendur. Miðborgin iðar af lífi og tónlistin ómar alls staðar allt frá litlum plötubúðum og listasöfnum, til flottra bara og virðulegra kirkna, til næturklúbba og stórra tónleikastaða.

Auk hefðbundinnar dagskrár verður boðið upp á „off venue“ viðburði þar sem ekki er krafist armbands. Þá verður hin árlega ráðstefna Iceland Airwaves haldin á Parliament hótelinu dagana 5. og 6. nóvember þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um hin ýmsu málefni er tengjast tónlistargeiranum.

Tónlistarveislan er handan við hornið!

Kynnið ykkur dagskrána