Uppbygging Borgarlínu við Hlemmtorg

Hlemmur

Framkvæmdir vegna endurgerðar norðursvæðis Hlemms og gatnamóta og göturýmis og vinna við nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á Hlemmtorgi hefst á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum þessa áfanga ljúki í lok árs 2027. 

Almenningssamgöngurými í rólegu og öruggu umhverfi

Samið hefur verið við jarðvinnufyrirtækið Gröfu og Grjót ehf um framkvæmd þessa næsta áfanga. Markmiðið er að skapa aðlaðandi og gönguvænt borgarrými með nýju yfirborði, setsvæðum og gróðri. 

Hlemmtorg verður mótað með framkvæmdunum sem sterkur borgarkjarni með auknu rými fyrir gangandi og hjólandi og aðstöðu fyrir almenningssamgöngur, sem verður eina akandi umferðin um torgið. 

Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og verða akreinar eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum. Gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu verða endurgerð í framkvæmdunum ásamt götukafla á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Leið Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu stoppistöðvar Borgarlínu á svæðinu verður lögð. Fráveitulagnir, vatnsveitu- og hitaveitulagnir, raflagnir, fjarskiptalagnir og umferðarljóslagnir verða endurnýjaðar á sama tíma.

Uppbyggingin fjölgar tengingum um miðborgina, styður við vistvæna ferðamáta og bætir aðgengi fyrir vegfarendur. Reykjavíkurborg, Veitur og Betri samgöngur vinna saman að endurnýjun innviða á Hlemmi.

Nánari upplýsingar: