Viltu eignast kjörkassa?
Mánudaginn 16. nóvember klukkan 13:00 býðst almenningi að koma í Knarrarvog 2, 104 Reykjavík, og sækja sér gamla kjörkassa.
Nú hafa nýir kjörkassar leyst þá eldri af hólmi, en þeir eru úr plasti og eru léttari og meðfærilegri en þeir gömlu.
Með því að gefa gömlu kjörkassana til almennings öðlast þeir vonandi nýtt líf, því þeir eru til ýmissa hluta nytsamlegir.
Þá má nota til dæmis fyrir kosningar í nemendafélög í skólum, sem leikmunur í leikriti eða kannski eru einstaklingar sem einfaldlega vilja eignast hluta úr kosningasögunni. Kassarnir eru misjafnir að útliti og eru í ágætu ásigkomulagi.
Alls eru þetta yfir 100 kjörkassar eða svo og einstaklingar fá einungis einn kassa hver.
Fyrstir koma fyrstir fá!