Friðarvika í Reykjavík

40 ár frá leiðtogafundi í Reykjavík

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev, aðalritari Sovétríkjanna, hittust.

Einnig eru liðin 70 ár frá því að stjórnmálasamband var komið á milli Japans og Íslands, sem gerir árið 2026 að mikilvægum tímamótum fyrir bæði löndin.

Af þessu tilefni verður haldin Friðarvika í Reykjavík þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá vegna tímamótanna.

Sýning um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki

Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands verða með sýningar um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki dagana 6. október til 7. nóvember 2026. Á sýningunum eru ljósmyndir og skýringar sem varpa ljósi á afleiðingar kjarnorkuárásanna árið 1945 og stuðla að auknum skilningi á hörmungum kjarnorkuvopna og mikilvægi friðar og afvopnunar.

Frá árinu 1995 hefur sýningin verið haldin alls 73 sinnum í 61 borg í 22 löndum. Sýningin er nú í fyrsta sinn hér á Íslandi.

Skipuleggjendur:

  • Reykjavíkurborg
  • Forseti Íslands
  • Háskóli Íslands
  • Hiroshima-borg
  • Nagasaki-borg

Samstarfsaðilar:

  • Sendiráð Japans á Íslandi
  • Hiroshima National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims
  • Nagasaki National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims 
Ljósmynd frá kjarnorkuspreninginu í Japan árið 1945.

 

Sýningin í Tjarnarsalnum opnar formlega þriðjudaginn 6. október klukkan 16:00.

  • Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar býður gesti velkomna. 
  • Yahata Teruko heldur erindi um reynslu sína frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásarnar áttu sér stað. 
  • Forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir mun svo opna sýninguna formlega ásamt Yoshifumi Ishida, safnstjóra Hiroshima/Nagasaki safnsins.

Á sýningunni verða meðal annars sýndir munir og söguleg gögn tengd árásunum, ljósmyndir, frásagnir eftirlifenda og boðið upp á sýndarveruleikabúnað.

Sýningin í Tjarnarsalnum er öllum opin til 1. nóvember næstkomandi.

Ljósmynd af eyðileggingunni eftir kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki árið 1945.

 

Sýningin í Háskóla Íslands verður opnuð formlega miðvikudaginn 7. október klukkan 12:00–13:00 í Veröld - húsi Vigdísar, á á Heimasvæði tungumálanna (bókasafni á 2. hæð). Þar mun Teruko Yahata halda erindi um reynslu sína frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásirnar áttu sér stað. Opnunarviðburðurinn er opinn almenningi.

Sýningin sjálf er staðsett á neðri hæð Háskólatorgs og stendur til 7. nóvember 2026. Á sýningunni eru ljósmyndir og skýringar sem varpa ljósi á afleiðingar kjarnorkuárásanna á borginar tvær.

 

Ljósmynd af Mikhail Gorbachev og Ronald Reagan sitjandi í stólum inni í Höfða á leiðtogafundinum 1986.

Stríð og friður í Reykjavík

RÚV sýndi fyrsta þáttinn í heimildaþáttaröðinni Stríð og friður í Reykjavík sunnudaginn 4. október.

Þættirnir eru þrír talsins og fjalla um tímann í kringum leiðtogafund risaveldanna í Reykjavík í október 1986, þar sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbachev leiðtogi Sovétríkjanna hittust í Höfða í Reykjavík.

Útvarpsþættirnir Konsert og Rokkland sem báðir eru á Rás 2 verða helgaðir John Lennon, Friðarsúlunni og Friðarvikunni í Reykjavík.

Í þættinum Konsert þann 8. október 2026, verður útvarpað tónleikum sem fóru fram 1. desember 2006 í Háskólabiói. Rokksveit Jóns Ólafs og félagar úr Sinfó  ásamt þeim Eivör og Daníel Ágúst, Birni Jörundi, KK og Magnúsi Þór flytja lög Lennons.

Í þættinum Rokklandi á sunnudaginn 11. október klukkan 16:00 er yfirskriftin Stríð og friður - og mun Óli Palli stjórnandi þáttarins stikla á stóru og verða Friðarsúlan, John Lennon og Yoko Ono í aðalhlutverki

Mikhail Gorbachev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna á tröppum Höfða.

Sýning um leiðtogafundinn í Höfða

Sýning um leiðtogafundinn verður í Höfða á annarri hæð hússins þann 10. október. Borgarsögusafn hefur haft umsjón með uppsetningu sýningarinnar. 

Valdar ljósmyndir úr safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur frá 1986 verða til sýnis ásamt munum sem tengjast leiðtogafundinum.

Höfði verður opinn laugardaginn 10. október 2026 frá klukkan 10.00 til 16.00.

Frítt inn og öll velkomin.

Kápa bókarinnar Kaldastríðsborg

Kaldastríðsborg

Bókin Kaldastríðsborg kom út fimmtudaginn 8. október í tilefni 40 ára afmælis leiðtogafundar Reagans og Gortachevs. Höfundur bókarinnar er Rósa Magnúsdóttir prófessor í sagnfræði og styrkir Reykjavíkurborg útgáfu bókarinnar. 

Kaldastríðsborg varpar ljósi á Reykjavík á tímum kalda stríðsins og áhrif alþjóðlegra átaka á borgarlífið og íslenskt samfélag.

Frá lokum síðari heimsstyrjaldar og fram að hruni Sovétríkjanna árið 1991 var Ísland hluti af átakasvæði þar sem hugmyndir, menning og lífsstíll urðu einnig að vígvelli.

Hið svokallaða kalda menningarstríð birtist með margvíslegum hætti, allt frá listum og skák til afþreyingar, viðskipta og daglegs lífs. 

Á Blöndu, hlaðvarpi Sögufélagsins, má nálgast viðtal við Rósu Magnúsdóttur um bókina Kaldastríðsborg.

Tendrun Friðarsúlunnar

Friðarsúlan (Imagine Peace Tower) verður tendruð í Viðey þann 9. október klukkan 20:00.

 

Í eyjunni verður friðsæl athöfn þar sem tónlistarkonan Árný Margrét flytur tónlist og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri verður með ávarp. Boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir. 

 

Ferðir út í Viðey eru í boði höfundar listaverksins, Yoko Ono, og fara frá Skarfabakka klukkan 17:30.

Viðburður á facebook

Tendrun Friðarsúlunnar í Viðey. Fjöldi fólks við súluna, myrkur.

Friðarráðstefna Höfða friðarseturs

Árleg alþjóðleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs, The Imagine Forum, verður haldin í 10. sinn í Hörpu þann 12. október 2026 undir yfirskriftinni Frá lærdómi kalda stríðsins til áskorana nútímans, „From Cold War Lessons to Modern Challenges".

Ráðstefnan er sérstaklega tileinkuð 40 ára afmæli leiðtogafundarins. Gestgjafar eru Höfði friðarsetur í samstarfi við embætti forseta Íslands, utanríkisráðuneytið, Reykjavíkurborg og Sagnfræði- og heimspekideild HÍ. Á ráðstefnunni mun einvala lið sérfræðinga víða að úr heiminum ræða um mikilvægi samvinnu, trausts og friðaruppbyggingar á tímum vaxandi spennu og óvissu í varnar-, öryggis- og afvopnunarmálum. Ráðstefnan er öllum opinn en skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar.

Unnin ljósmynd af Höfða.

Kvikmyndasýning og origamismiðja

Sendiráð Japans á Íslandi býður til sérstakrar sýningar á japönsku kvikmyndinni „Prayer: Figments of Nagasaki“ miðvikudaginn 14. október 2026  klukkan 16:00 í Vigdísarstofnun, Brynjólfsgötu 1, 107 Reykjavík. 

Fyrir sýningu kvikmyndarinnar er gestum velkomið að taka þátt í lítilli vinnusmiðju þar sem kynntar eru japönsku listgreinarnar origami og chigiri-e (listform þar sem notaðir eru rifnir pappírsbútar).

Masao Ieki framleiðandi og Katsuya Matsumura leikstjóri myndarinnar fjalla um gerð hennar áður en sýning hefst. 
 
Myndin gerist í Nagasaki árið 1957, tólf árum eftir kjarnorkuárásina, og fjallar um tvær kaþólskar konur sem bera enn líkamleg og andleg ör stríðsins. Myndin varpar ljósi á langvarandi áhrif kjarnorkuárásarinnar ásamt trú og sögu kristins samfélags í Nagasaki. 

Að sýningu lokinni verður opnað á spurningar frá áhorfendum úr sal.

Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn.