Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 20. október, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:03. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Björg Magnúsdóttir, Ari Edwald, Bjarni Fritzson, Bjarni Guðjónsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Björn Gíslason, Brynjar Níelsson, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Lárus Blöndal Sigurðsson, Líf Magneudóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Róbert Ragnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Skúli Helgason og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að fela menningar- og íþróttasviði í samráði við fjármála- og áhættustýringasvið að kortleggja rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og kanna tækifæri til að útvista rekstri garðsins, í heild eða að hluta. Einnig skal meta meðal annars raunkostnað borgarinnar af rekstrinum, fjárfestingaþörf næstu ára, áhuga markaðsaðila og hvernig tryggja megi velferð dýra og fræðsluhlutverk garðsins gagnvart leik- og grunnskólabörnum verði reksturinn færður að hluta eða í heild frá borg og til rekstraraðila.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:
Borgarstjórn samþykkir að fela menningar- og íþróttasviði í samráði við fjármála og- áhættustýringasvið að kortleggja rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og kanna tækifæri til að auka samstarf við önnur sveitarfélög og ríkið. Einnig skal meta í samráði við starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins meðal annars raunkostnað borgarinnar af rekstrinum, fjárfestingaþörf næstu ára, tækifæri til að auka aðdráttarafl garðsins, tekjuöflunarmöguleika og hvernig tryggja megi betur velferð dýra og fræðsluhlutverk garðsins gagnvart leik- og grunnskólabörnum.
Breytingartillagan er felld með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afreiðslu málsins.
Tillaga um athugun á útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er samþykkt með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afreiðslu málsins. MSS26100071Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er eign allra Reykvíkinga og það er sameiginlegt markmið okkar að hann haldi áfram að þjóna börnum og fjölskyldum vel. Árið 2025 námu tekjur garðsins 190 milljónum króna en nettóframlag borgarinnar tæpum 495 milljónum. 92% teknanna koma úr aðgangseyri einum. Meirihlutinn telur eðlilegt að afla upplýsinga um hvort nýta megi aðra tekjustofna, svo sem veitingar, viðburði og samstarf við fyrirtæki, fremur en að byggja reksturinn á gjaldtöku af barnafjölskyldum. Velferð dýranna, fagmennska í dýrahaldi og fræðsla fyrir leik- og grunnskólabörn eru ófrávíkjanleg skilyrði í allri þessari vinnu. Tillagan biður um upplýsingar en ekki ákvörðun.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er mikilvægur áfangastaður barna og fjölskyldna og hefur jafnframt mikilvægu fræðslu og samfélagslegu hlutverki að gegna. Við teljum eðlilegt að skoðaðar séu ólíkar leiðir til framtíðarrekstrar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins en leggjum áherslu á að mögulegar breytingar á rekstrarformi verði ekki byggðar á þeirri forsendu að garðurinn þurfi að standa að fullu undir rekstri sínum með tekjum af gestum. Tryggja þarf áfram hóflega gjaldtöku og jafnt aðgengi barna óháð efnahag, auk þess sem standa þarf vörð um dýravelferð og fræðsluhlutverk garðsins. Verði farið í samstarf við einkaaðila þarf Reykjavíkurborg að setja skýr markmið og skilyrði um þessa þætti áður en ákvörðun er tekin um framtíðarfyrirkomulag rekstrarins.
Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er sannarlega ein af perlum borgarinnar sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir borgarbúa og nýtur verðskuldaðra vinsælda. Slík starfsemi er eðli málsins samkvæmt í stöðugri þróun. Þarna er einnig um að ræða nokkuð veigamikinn þátt í rekstri borgarinnar, um 500 m.kr. útgjöld árlega og tæplega tvöfalt hærri upphæð þegar einnig er horft til innri leigu. Það er því jafn sjálfsagt að rýna tækifæri til að bæta og efla rekstur garðsins eins og á við um aðra þætti reksturs borgarinnar.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er mikilvæg stofnun í borgarlífinu sem hefur víðtækt fræðslu- og skemmtigildi, tekur á móti dýrum í neyð og veitir gæludýraeigendum þjónustu. Fjárfestingaþörf garðsins er þó nokkur og huga þarf t.a.m. að dýravelferð við uppbyggingu. Meirihlutaflokkunum væri nær að huga að leiðum til að bæta úr henni frekar en að grafa undan garðinum með óraunsæjum hugmyndum um útvistun sem myndu einungis verða til þess að uppsöfnuð þekking og reynsla kynni að glatast, aðgangseyrir fyrir fjölskyldur barna hækka og grunnhlutverk garðsins og tilgangur týnist og verði að lokum undir vegna krafna meirihlutans um fjárhagslega arðsemi.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Ísland leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks telur alls ekki skynsamlegt að athuga mögulega útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Garðurinn er sameiginlegt verðmæti okkar borgarbúa þar sem útivist, afþreying og fræðsla haldast í hendur. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er samofinn dýraþjónustu Reykjavíkur þar sem flestum dýrum sem eru þar hefur verið bjargað. Garðurinn býður upp á fjölbreytta fræðslu fyrir skóla, viðburðahald er að aukast, sumarfrístundin hefur þar aðsetur yfir sumartímann og garðurinn er í samstarfi við bæði Vinnuskólann og Vinnumálastofnun. Hlutverk garðsins eru fjölmörg og margt frábært sem ekki er sjálfsagt að haldi áfram ef einkaaðili tekur við rekstrinum. Þess vegna lagði borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fram þá breytingartillögu að kortleggja reksturinn því tækifæri til uppbyggingar og eflingar eru vissulega mikil. Að hefja samráð við starfsfólk garðsins áður en tækifæri til útvistunar yrðu skoðuð. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands harmar að breytingartillagan hafi veriðc felld og að meirihlutinn sjái ekki sóma sinn í að hefja samráð við starfsfólkið fyrst og kortleggja reksturinn án þess markmiðs að útvista rekstrinum. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands getur ekki samþykkt að fara í kortlagninguna með tækifæri til útvistunar sem leiðarljós. Borgarfulltrúinn ítrekar vegna niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar mikilvægi þess að fara í heildstætt áhættumat því útvistun getur ekki aðeins byggst á fjárhagslegum forsendum heldur þarf að greina möguleg áhrif á samfélagið.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar:
Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að láta vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervigreindar og aukinnar sjálfvirknivæðingar á rekstur Reykjavíkurborgar, atvinnustig íbúa, tekjustofna borgarinnar og samfélagslegan jöfnuð til næstu 5-10 ára.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs. MSS26100072Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að gerð verði heildstæð greining á áhrifum gervigreindar og sjálfvirknivæðingar á rekstur og tekjustofna Reykjavíkurborgar, atvinnu borgarbúa og samfélagslegan jöfnuð til næstu 5-10 ára. Gervigreind er komin til að vera og hún getur orðið ein mesta framfarabylting okkar tíma, aukið framleiðni, dregið úr skriffinnsku og gefið starfsfólki borgarinnar meiri tíma í það sem mestu skiptir, að veita borgarbúum góða almannaþjónustu. Reykjavík á að vera í fremstu röð við að nýta tæknina til góðs á ábyrgan hátt. Tæknibyltingar breyta ekki aðeins því hvernig við vinnum heldur líka því hvernig verðmæti verða til og hver nýtur þeirra. Borgin byggir stærstan hluta tekna sinna á útsvari af launum íbúa en fær hvorki hlut í tekjuskatti fyrirtækja né fjármagnstekjuskatti. Ef framleiðni og hagnaður fyrirtækja aukast án þess að launin fylgi með gæti borgarsjóður farið á mis við ávinninginn meðan þörfin fyrir grunnþjónustu á borð við leikskóla, grunnskóla og velferðarþjónustu eykst. Greiningin á að byggja á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin í stafrænni umbreytingu borgarinnar og fara fram í samráði við starfsfólkið. Við eigum ekki að óttast framtíðina heldur undirbúa hana svo aukin verðmætasköpun skili sér í betri lífskjörum, öflugri þjónustu og auknum jöfnuði fyrir alla borgarbúa.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti DCB samþykkir að vísa tillögunni til borgarráðs og þaðan til þjónustu- og nýsköpunarsviðs og fjármála- og áhættustýringarsviðs. Reykjavíkurborg nýtir gervigreind nú þegar með ýmsum hætti og ábatametur fjárfestingar í slíkum lausnum. Sjálfsagt er að meta þetta með heildstæðum hætti. Flóknara er að meta áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn og tekjur borgarinnar af útsvari enda liggur ekki enn fyrir að fullu hvaða störf munu víkja og hvaða störf verða til með aukinni notkun gervigreindar.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Tæknin býður upp á fjölmörg tækifæri á hinum ýmsu sviðum en móta þarf skýr viðmið um til hvers hún er nýtt, hvenær megi nýta hana og á forsendum hverra. Mikilvægt er að hið opinbera noti ekki lausnir og tækni sem kunna að hafa skaðleg áhrif á samfélög, fólk og umhverfi. Fyrst og fremst á ný tækni að nýtast til góðra verka og að bæta tilveru fólks og fara vel með umhverfið. Gervigreind, mállíkön og sjálfvirknivæðing koma ekki í stað mannlegra samskipta og mikilvægt er að það sé haft að leiðarljósi í greiningarvinnu og allri stefnumótun og þjónustu borgarinnar.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Ísland leggur fram svohljóðandi bókun:
Nauðsynlegt er að fara í greiningu á áhrifum gervigreindar og sjálfvirknivæðingar á rekstur Reykjavíkurborgar, tekjustofna, atvinnustig íbúa, samfélagslegan jöfnuð og umhverfið. Ef innleiðing gervigreindar verður áfram algjörlega á forsendum markaðarins án félagslegrar stýringar og eignarhalds er augljóst að útkoman verður síhröðuð tilfærsla auðs frá vinnandi fólki til fjármagnseigenda. Borgin er einn stærsti vinnu- og þjónustuveitandi á landinu og ber því ríka ábyrgð á að kortleggja bæði hvernig tæknin nýtist borgarbúum og hætturnar sem af henni stafa. Sjálfvirknivæðing á að leiða til styttri vinnutíma, betri þjónustu og minna vinnuálags. Ekki til skertra launa, hópuppsagna eða að mannleg samskipti við borgarbúa víki fyrir vélrænu viðmóti. Borgin verður að leggja aukna áherslu á uppbyggingu sameiginlegra opinberra innviða og eflingu þekkingar innan borgarinnar. Eftir því sem stærri hluti samfélagslegrar grunnþjónustu nýtir stafræna tækni verður stafrænt sjálfstæði æ mikilvægara og fer að snúast um nauðsyn lýðræðislegs valds yfir tækninni sjálfri.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að gerðar verði breytingar á framsetningu reikninga Reykjavíkurborgar vegna leikskóladvalar þannig að upplýsingar um meðalrekstrarkostnað á barn og reiknað framlag Reykjavíkurborgar til þjónustunnar verði birtar samhliða gjöldum foreldra og afsláttum. Skóla- og frístundasviði er falið að útfæra og innleiða breytinguna í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið. Útfærsla og tímasett innleiðingaráætlun verði lögð fyrir leikskóla- og daggæsluráð eigi síðar en 31. janúar 2027.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Tillagan er samþykkt með 21 atkvæði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúa Vinstrisins. MSS26100073Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja áherslu á að íbúar Reykjavíkurborgar hafi skýrar og aðgengilegar upplýsingar um kostnað og fjármögnun opinberrar þjónustu. Leikskólinn er fyrsta menntastigið og gegnir mikilvægu hlutverki í þroska og menntun barna, auk þess að vera ein af grunnforsendum atvinnuþátttöku foreldra. Um er að ræða umfangsmikla samfélagslega fjárfestingu sem er að stærstum hluta fjármögnuð úr sameiginlegum sjóðum borgarbúa. Með því að birta upplýsingar um meðalkostnað við leikskólapláss og framlag Reykjavíkurborgar á reikningum foreldra verður heildarmyndin skýrari. Foreldrar sjá þá ekki aðeins hvað þeir greiða sjálfir, heldur einnig umfang þeirrar þjónustu sem að baki stendur. Í framhaldinu má skoða hvort hægt sé að birta álíka upplýsingar á fleiri greiðsluseðlum sem borgin gefur út. Aukið gagnsæi stuðlar að betri skilningi á virði leikskólastarfsins og skapar jafnframt grundvöll fyrir upplýsta umræðu um gæði þjónustunnar og ábyrga nýtingu skattfjár.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks um breytingu á framsetningu reikninga Reykjavíkurborgar vegna leikskóladvalar. Sveitarfélög landsins standa undir gríðarlega verðmætri þjónustu til barna og fjölskyldna og borgarfulltrúar Samfylkingarinnar taka undir mikilvægi þess að foreldrar og borgarbúar séu upplýstir um raunverulegan kostnað við leikskólaþjónustu. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og ein mikilvægasta fjárfesting samfélagsins í framtíðinni. Aðgangur allra barna að öflugu leikskólastarfi, óháð efnahag foreldra, er jafnframt ein af undirstöðum jafnréttis í okkar samfélagi. Við eigum að vera stolt af því að greiða skatta til þess að fjármagna þessa mikilvægu þjónustu sameiginlega. Það er einmitt kjarni norræna velferðarsamfélagsins. Mikilvægt er að upplýsingagjöfin endurspegli að þetta er ekki niðurgreiðsla frá borginni til foreldra, heldur sameiginleg fjárfesting okkar allra, sem við höfum ákveðið að standa undir saman.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Vinstrið setur spurningarmerki við þessa tillögu meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar um að auka kostnaðarvitund foreldra leikskólabarna. Sjálfsagt er að auki gagnsæi um útgjöld borgarinnar en foreldar leikskólabarna eiga ekki einir að bera kostnaðarvitund Reykvíkinga um hvað nám og menntun leikskólabarna kostar að meðaltali. Vandséð er hvers vegna Reykjavíkurborg ætti að ráðast í sérstök útgjöld til þess að kynna eingöngu foreldrum raunkostnað við leikskólakerfið frekar en t.d. að senda öllum ökumönnum reglulegar tilkynningar um hver kostnaður borgarinnar sé vegna vegakerfisins eða hvað hvert bílastæði kosti samfélagið í raun og veru. Það að auka „kostnaðarvitund“ íbúa er að öllum líkindum undirbúningur Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í því að ráðast síðar í umfangsmiklar breytingar, annaðhvort gríðarlega hækkun á gjaldskrá eða einkavæðingu leikskólanna. Tillaga þessi virðist drifin áfram af furðulegri andúð á samfélagslegum rekstri, líkt og tilgangurinn sé sá að koma sektarkennd inn hjá foreldrum leikskólabarna
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands styður tillöguna og telur jákvætt að framlag borgarinnar fyrir hvert barn sé sýnilegt fjölskyldum. Slík framsetning mun auka meðvitund borgarbúa um mikilvægi hins opinbera, að útsvarsgreiðslur séu að skila sér í uppbyggilegt starf samfélaginu til bóta sem eykur traust almennt til borgarinnar. Jafnframt er jákvætt að birta aðeins meðalkostnað fyrir hvert barn í leikskóla í Reykjavík en ekki raunkostnað fyrir hvert barn. Það er margt sem spilar inn í þann kostnað eins og dvalartími, stuðningsþarfir, stærð leikskólans, viðhaldsþörf leikskólans og fyrirkomulag matreiðslu. Því er sanngjarnara að birta meðalkostnað og slíkt er forsenda þess að ekki skapist óheilbrigður samanburður milli fjölskyldna um að annað barn sé dýrara kerfinu en hitt. Heilt á litið er þetta jákvætt skref í átt að auknu gagnsæi og aukinni vitund borgarbúa um mikilvægi sameiginlegra innviða.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn beini því til íþrótta- og útilífsráðs að endurskoða ákvörðun sína frá fundi ráðsins þann 2. október varðandi rekstur íþróttamannvirkisins að Austurbergi 3 og rekstrar- og þjónustusamning við íþróttafélagið Aþenu og feli menningar- og íþróttasviði að gera rekstrar- og þjónustusamning við Aþenu um mannvirkið.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með 17 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Miðflokksins að vísa tillögunni frá.
Borgarfulltrúar Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26100074Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Miðflokksins harma ákvörðun meirihlutans og Samfylkingarinnar að vísa frá tillögu um endurnýjun rekstrar- og þjónustusamnings við íþróttafélagið Aþenu. Aþena hefur náð eftirtektarverðum árangri í efra-Breiðholti þar sem þátttaka barna í skipulögðu íþróttastarfi hefur lengi verið lítil. Félagið hefur sérstaklega náð til stúlkna og barna af erlendum uppruna og fjölgaði iðkendum úr rúmlega 40 í 140 á aðeins tveimur árum. Starfið nær langt út fyrir hefðbundnar íþróttaæfingar og felur meðal annars í sér valdeflingu, leiðtogaþjálfun, heimanámsaðstoð og stuðning við íslenskunám. Loforð um æfingatíma koma ekki í stað rekstrarsamnings og félagsaðstöðu. Forsvarsmenn Aþenu hafa skýrt borginni frá því að þessir þættir séu forsenda áframhaldandi starfsemi. Engin fullnægjandi gögn eða útreikningar hafa verið lagðir fram um meint fjárhagslegt hagræði af yfirtöku borgarinnar. Þá liggur ekkert fullnægjandi mat fyrir á áhrifum ákvörðunarinnar á iðkendur og fjölskyldur þeirra. Borgin á að hlúa að grasrótarstarfi sem skilar árangri og læra af því, ekki taka undan því grundvöllinn. Meirihlutinn og Samfylkingin bera ábyrgð á afleiðingum þessarar ákvörðunar fyrir Aþenu og börnin í efra-Breiðholti.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar meirihlutans árétta að ákvörðun um breytt rekstrarfyrirkomulag íþróttahússins að Austurbergi 3 snýr að rekstri mannvirkis í eigu borgarbúa en beinist ekki gegn íþróttafélaginu Aþenu. Starf félagsins er mikilvægt og áfram er gert ráð fyrir góðu samstarfi við félagið. Í samþykkt íþrótta- og útilífsráðs er sérstaklega kveðið á um að Aþena fái nægan fjölda æfingatíma og aðstöðu til æfinga og mótahalds í samræmi við þarfir. Breytingin á því ekki að hafa neikvæð áhrif á starf félagsins eða iðkendur þess. Þá yfirtekur borgin ráðningarsambönd starfsfólks hússins og kjör þess og réttindi haldast að fullu. Með því að borgin taki við rekstri hússins er markmiðið að bæta nýtingu þess og tryggja fleiri félögum og samtökum aðgang að aðstöðu fyrir íþróttastarf í hverfinu. Markmiðið er að efla íþróttastarf barna og ungmenna í efra-Breiðholti í samvinnu við öll félögin í hverfinu, Aþenu þar á meðal. Á þeim grundvelli var tillögu Miðflokksins vísað frá.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Íþróttafélagið Aþena hefur unnið ómetanlegt starf í efra-Breiðholti og á skömmum tíma tekist að virkja stúlkur í hverfinu, ekki síst stúlkur af erlendum uppruna, til þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Sá árangur sýnir mikilvægi þess að mæta ólíkum hópum á þeirra eigin forsendum og stúlkurnar eiga skilið fullan stuðning til að halda áfram. Meirihlutinn hefur lagt áherslu á að Aþena fái áfram nægan fjölda æfingatíma og mikilvægt er að við það verði staðið. Skorað er á menningar- og íþróttasvið að ganga frá samkomulagi við Aþenu sem tryggir félaginu fullnægjandi æfingatíma og fyrirsjáanleika til lengri tíma, ásamt sérstökum og gagnsæjum stuðningi við íþróttastarfið sem tengdur er skýrum markmiðum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa borgarfulltrúa Vinstrisins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fjölga nemendum í skólahljómsveitum Reykjavíkur og vísi tillögunni til skóla- og frístundasviðs þar sem hún verði útfærð og kostnaðarmetin í samstarfi við skólastjórnendur skólahljómsveitanna. Fyrirkomulag fjölgunar verði í höndum skólastjórnenda skólahljómsveita og skóla- og frístundasviðs og að lokum verði tillagan kynnt í skóla- og frístundaráði og borgarráði. Gert er ráð fyrir að fjölgun nemenda í skólahljómsveitum taki gildi árið 2027.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS26100075Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skólahljómsveitir gegna mikilvægu hlutverki við að jafna aðgengi barna að tónlistarnámi og mikil aðsókn endurspeglar vel gildi starfsins. Nemendum hefur fjölgað og börnum á biðlistum fækkað frá fyrra ári, sem er ánægjuleg þróun. Eftirspurn er þó enn umfram framboð og áætlað er að tæpar 300 milljónir króna þurfi til að mæta henni að fullu ofan á þær tæpu 500 milljónir sem rekstur skólahljómsveita kostar nú. Á sama tíma stendur Reykjavíkurborg frammi fyrir því verkefni að ná betri tökum á rekstrinum og ráðast í nauðsynlega hagræðingu. Því þarf að skoða frekari fjölgun nemendaplássa í skólahljómsveitum í samhengi við fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs og heildarforgangsröðun fjármuna, með það að markmiði að efla starfið og bæta aðgengi barna að tónlistarnámi eftir því sem fjárhagslegt svigrúm leyfir.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Skólahljómsveitir borgarinnar gegna mjög mikilvægu hlutverki í tónlistarnámi barna í Reykjavík og hafa gert um árabil. Þær eru fjórar talsins og undanfarinn áratug hefur tekist að fjölga nemendum í sveitunum um 144 til að mæta mikilli eftirspurn barnafjölskyldna í borginni. Mörg börn bíða eftir að komast að í skólahljómsveit enda frábært starf sem þar er unnið. Gjaldtakan er hófleg en önnin í skólahljómsveitunum kostar innan við 20 þúsund krónur. Skólahljómsveitirnar stuðla að jöfnuði og auka aðgengi barna og ungmenna að tónlistarnámi óháð efnahag foreldra og því styðja fulltrúar Samfylkingarinnar tillöguna enda bíður fjöldi barna eftir því að komast í skólahljómsveit í borginni.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Ísland leggur fram svohljóðandi bókun:
Skólahljómsveitir Reykjavíkur bjóða börnum upp á tækifæri til tónlistarnáms með lágum fjárhagslegum þröskuldi. Skólahljómsveitir eru því mikilvægar til að auka tækifæri barna til tónlistarnáms óháð fjárhag ásamt því að efla félagslega þátttöku. Í dag eru 590 nemendur sem stunda nám í skólahljómsveitum en eftirspurnin er mun meiri. Haustið 2026 voru 345 nemendur á biðlista og því tímabært að endurmeta fyrirkomulag skólahljómsveita, hvort hægt sé að fjölga nemendum í hverri skólahljómsveit eða hvort æskilegt sé að stofna fleiri skólahljómsveitir.
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 8. og 15. október. MSS26010002
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. október:
Þakkað er fyrir kynningu framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á stöðu mála vegna fyrirhugaðs flutnings heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkisins um næstu áramót. Ljóst er að undirbúningur ríkisins hefur ekki verið nægjanlegur og enn ríkir óvissa um þau verkefni sem verða eftir hjá sveitarfélögum og umfang þeirra. Breytingarnar munu hafa í för með sér umtalsverðar áskoranir fyrir Reykjavíkurborg. Hætta er á þjónusturofi við íbúa og viðskiptavini á meðan unnið er að nýju fyrirkomulagi, auk þess sem sérþekking sem byggst hefur upp innan Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kann að glatast. Jafnframt mun þjónusta við svið borgarinnar skerðast í formi umsagna, leiðbeininga og ráðgjafar. Þá blasir við aukið flækjustig í eftirlitsmálum, lengri boðleiðir, hægari vinnsla starfsleyfa og aukinn kostnaður fyrir borgina vegna umsagna og þjónustu ríkisstofnana. Mikilvægt er að tryggja að þekking, reynsla og nauðsynlegur mannskapur verði áfram til staðar hjá sveitarfélögum til að sinna þeim verkefnum sem eftir verða. Í ljósi þessarar stöðu telur Vinstrið nauðsynlegt að skýrsla verði lögð fram um stöðu undirbúnings vegna yfirfærslunnar. Þessi kynning svarar mörgum spurningum en ljóst er að enn ríkir mikil óvissa um stöðuna.
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 16. október, íþrótta- og útilífsráðs frá 2. október, menningarráðs frá 2. október, leikskóla- og daggæsluráðs frá 12. október, skóla- og frístundaráðs frá 12. október, umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. og 14. október og velferðarráðs frá 7. október. MSS26010022
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands vegna 2. liðar fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, samþykktar fyrir notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráðs:
Lagt er til að fimmta grein samþykktar fyrir notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð geri ráð fyrir áheyrnafulltrúa NPA miðstöðvarinnar. Þriðja málsgrein fimmtu greinar samþykktarinnar verði því svohljóðandi: Notendaráð fatlaðs fólks: ÖBÍ réttindasamtök, Landssamtökin Þroskahjálp og Geðhjálp tilnefna hvert sinn fulltrúa og einn til vara og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara. NPA miðstöðin tilnefnir einn fulltrúa með málfrelsi og tillögurétt og einn til vara. Þegar ráðið fjallar um málefni fatlaðs fólks eiga þeir fulltrúar jafnframt sæti í ráðinu.
Breytingartillagan er felld með 12 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Samþykkt fyrir notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð er samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26080081.4. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS260800815. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, samþykkt fyrir leikskóla- og daggæsluráð, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS260800816. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, samþykkt fyrir menningarráð, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS260800817. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, samþykkt fyrir íþrótta- og útilífsráð, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS260800818. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, breyting á samþykkt fyrir velferðarráð, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS260800819. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 16. október, breyting á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar – fyrri umræða.
Samþykkt að vísa til síðari umræðu. MSS26060008Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun undir 4. lið fundargerð forsætisnefndar frá 16. október:
Fulltrúar Sósíalistaflokks Íslands, Vinstrisins og Samfylkingarinnar leggja áherslu á mikilvægi þess að NPA miðstöðin fái áheyrnarfulltrúa í notendaráði fatlaðs fólks. NPA miðstöðin var með fasta fulltrúa í mannréttindaráði þegar fjallað var um málaflokkinn og lögðu þau sannarlega sitt af mörkunum þar, bæði í málefnum sem varða NPA en líka öðrum hagsmunamálum fatlaðs fólks s.s. umfjöllun um aðgengismál, borgarumhverfi og samgöngur, skólamál og almenna stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks. Miðstöðin er mikilvægt samvinnufélag fatlaðs fólks á Íslandi og hefur ríka innsýn í málaflokk fatlaðs fólks og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Mikilvægt er þegar ráðið starfar undir formerkjum notendaráðs fatlaðs fólks að notendur þjónustunnar hafi þar raunverulega rödd.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerð forsætisnefndar frá 16. október:
Jákvætt er að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í forsætisnefnd hafi dregið til baka mjög óvandaða tillögu um að fækka áheyrnarfulltrúum í skóla- og frístundaráði. Samkvæmt þeirri tillögu var gert ráð fyrir því að fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva og fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna ættu ekki lengur rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Fulltrúar meirihlutans í skóla- og frístundaráði voru ósammála þessari nálgun félaga sinna í forsætisnefnd. Ljóst er að meirihlutinn hefði þurft að ræða mun betur saman í aðdraganda þessa máls þar sem mikill tími hefur farið í að ræða óundirbúið mál sem engin samstaða var um innan meirihlutans. Vinstrið telur þar að auki ekki þörf á því á þessu stigi að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla eigi seturétt á fundum skóla- og frístundaráðs. Þess má geta að fulltrúar starfsfólks skólanna eiga aðkomu að ráðinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun borgarfulltrúa Miðflokksins undir 2. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs 12. október:
Borgarfulltrúar Miðflokksins lýsa þungum áhyggjum af upplýsingum um að óviðkomandi einstaklingar og hópar hafi ráðist til inngöngu í grunnskóla Reykjavíkur og veist þar að nemendum eða starfsfólki. Þá er grafalvarlegt að vísbendingar séu um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu að verða fleiri og alvarlegri og að kennarar upplifi sig óvarða í störfum sínum. Reykjavíkurborg ber skylda til að hlusta á raddir kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks og tryggja bæði nemendum og starfsfólki öruggt náms- og starfsumhverfi. Aðgangsstýring, læstar dyr og önnur öryggistæki kunna að vera nauðsynlegar skammtímalausnir, en mega ekki koma í stað þess að greina og takast á við rót vandans. Skólar borgarinnar eiga ekki að þróast í átt að lokuðum öryggissvæðum þar sem börn og starfsfólk þurfa jafnvel að sæta öryggisleit. Miðflokkurinn kallar eftir heildstæðu yfirliti yfir fjölda, eðli og þróun öryggisatvika í grunnskólum borgarinnar, útköll lögreglu og afleiðingar fyrir starfsfólk og nemendur. Einnig þarf að liggja fyrir hver tengsl þeirra sem koma að alvarlegum atvikum eru við viðkomandi skóla, ásamt upplýsingum um aldur, búsetu og bakgrunn.
Fylgigögn
- Fundargerð forsætisnefndar frá 16. október
- - 2. liður; samþykkt fyrir notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð
- - 4. liður; samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð
- - 5. liður; samþykkt fyrir leikskóla- og daggæsluráð
- - 6. liður; samþykkt fyrir menningarráð
- - 7. liður; samþykkt fyrir íþrótta- og útilífsráð
- - 8. liður; breyting á samþykkt fyrir velferðarráð
- - 9. liður; breyting á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar – fyrri umræða
- Fundargerð íþrótta- og útilífsráðs frá 2. október
- Fundargerð menningarráðs frá 2. október
- Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 12. október
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 12. október
- Fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. október
- Fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. október
- Fundargerð velferðarráðs frá 7. október
Fundi slitið kl. 17:35
Björg Magnúsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Silja Sóley Birgisdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar frá 20. október 2026 - prentvæn útgáfa